31.08.1915
Neðri deild: 47. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 932 í B-deild Alþingistíðinda. (1784)

58. mál, ritsíma og talsímakerfi Íslands

Framsm. (Sigurður Eggerz); Jeg er þakklátur háttv. 1. þm. N.-Múl. (B. H.) fyrir að taka aftur brtt. sína. Málið verður við það miklu einfaldara. Hvað snertir 2. breytingartillögu nefndarinnar, þá vil jeg láta þess getið, eins og kom líka fram í nefndarálitinu, að við áttum ítarlegt tal um hana við landsímastjórann. Hann tók það fram, að meðan á stríðinu stæði væri óhugsandi að reisa stöð, er drægi til útlanda. Hins vegar mætti reisa smástöð, er samband hefði við skip. Mætti koma þessari stöð þannig fyrir, að seinna yrði fult gagn að henni, er stærri stöð yrði reist, þannig, að stærri stöðin yrði þeim mun ódýrari, er að því kæmi, að reisa hana. Þetta álít jeg að sje mjög verulegt atriði.

Hvað snertir kostnaðinn, þá áætlaði landsímastjóri, að hann myndi verða 40,000–50,000 kr. Af ritsímaláninu, sem tekið var, mun nú vera svo mikið eftir, að hægt sje að reisa þessa stöð fyrir þá peninga.

Jeg sje svo ekki ástæðu til þess, að tala meira um þetta, en legg eindregið með því, að breytingartillögur nefndarinnar verði samþyktar.