07.09.1915
Neðri deild: 53. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 971 í B-deild Alþingistíðinda. (1813)

64. mál, aðflutningsbann á áfengi

Jón Magnússon:

Jeg get ekki sjeð ástæðu til að taka málið út af dagskrá. Breytingartillögur þessar eru þannig lagaðar, að hægt er að átta sig á þeim þegar í stað, því að þær fara í líka átt og það, sem í lögunum stendur, eru að eins til frekari skýringa. Að öðru leyti hefi jeg ekki heyrt ástæður færðar fyrir því, að málin yrðu tekin út af dagskrá. Það væri líka illa farið, ef menn færu að óska þess, að mál væru tekin út af dagskrá, þegar er orðið áliðið þings, þótt breytingartillögur komi of seint fram. Það myndi lengja þingtímann að óþörfu. Enda hefir verið sá siður, að þingmenn væru frjálslegir í þessu efni. Jeg verð því að mótmæla því, að málið (bannlagabreytingin) verði tekið út af dagskrá.