07.09.1915
Neðri deild: 53. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 975 í B-deild Alþingistíðinda. (1817)
64. mál, aðflutningsbann á áfengi
Framsögum. meiri hl. (Sveinn Björnsson):
Jeg þarf ekki, frekar en vant er, að svara háttv. 2. þm. S.- Múl. (G. E.) mörgu, en af því að jeg heyrði að einhver sagði »heyr« áðan, þegar hann talaði, þá lítur út fyrir að einhverjir fleiri sjeu honum samdóma, og því ætla jeg að segja nokkur orð.
Háttv. þm. sagði að 4. brtt. væri alveg sama efnis og 4. gr., sem hjer var feld á dögunum. Jeg held að jeg ætti að sýna mönnum þar lítil dæmi um sannleiksást og samviskusemi þessa hv. þm. Jeg ætla að lesa upp með leyfi hæstv. forseta það, sem felt var á dögunum. Þar stendur svo:
»Nú er maður ölvaður á almannafæri og raskar ró og almanna friði, eða er ósjálfbjarga, og má þá taka hann fastan, en ekki má hafa hann í haldi lengur en þörf krefur — — — «
Hvar stendur um þetta í minni brtt.? Auðvitað hvergi. Svo kemur síðari hluti greinarinnar: »Skylt er hverjum ölvuðum manni að gjöra fyrir dómara grein fyrir því, hvernig hann hafi fengið áfengi það, er hann hefir ölvaður af orðið. Gjöri hann það ekki, skal hann talin brotlegur gegn 1. gr. laga nr. 44, 30. júlí 1909«. Í stað þessa gjörir nú 4. brtt. meiri hlutans á þgskj. 794 ráð fyrir þeim viðurlögum, að sá, sem ekki vill gjöra grein fyrir því, hvar hann hafi fengið áfengi, skuli sæta 20–500 kr. sektum. Eins og allir sjá, er hjer um alt aðra og miklu vægari refsingu að ræða. (Guðmundur Eggerz: Þetta er bara »pro forma«-breyting). Þetta eru bara bein ósannindi. og alt hjal um þingskapabrot fellur alveg um sjálft sig. Að þessi háttv. þingmaður er á móti greininni, stafar af því, að hann er hræddur um, að fyrir sig verði leiddir ölvaðir menn, og það telur hann vera að misbjóða sjer persónulega: Það hefir hann oft sagt. En þetta er misskilningur hjá honum. Það þarf ekki að leiða þá fyrir hann fyrr en á eftir.