13.08.1915
Efri deild: 31. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 239 í B-deild Alþingistíðinda. (183)

18. mál, útflutningsbann á breskum vörum

Framsögumaður (Steingr. Jónsson):

Þetta frumv. er komið aftur frá háttv. Nd., sem hefir breytt því að eins að því leyti, að 2. gr. hefir verið feld burtu og tekin í stað þess upp í frumv., sem við höfðum til 2. umr. áðan, ófriðarráðstafanirnar, og þar sem nefndin álítur að vel eigi við, að heimildin til að banna útflutning á innlendum vörum sje í þeim lögum, ræður hún háttv. deild til þess, að samþ. frumv. óbreytt.