30.08.1915
Neðri deild: 46. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1005 í B-deild Alþingistíðinda. (1842)

120. mál, þingsköp Alþingis

Eggert Pálsson :

Brtt. frá meiri hlutanum og minni hlutanum eru svo skýrar, að þeim er hægt að svara með atkvæðagreiðslunni, og því fer jeg ekki út í þær. Jeg vildi að eins gjöra litla athugasemd við 11, gr., um kosningu skrifstofustjóra, því að mjer þykir það ákvæði óljóst. Þar stendur, að forsetarnir kjósi skrifstofustjóra til 6 ára í senn. Aftur á móti er ekki gjört ráð fyrir því, að skrifstofustjóri geti forfallast milli þinga, og hvernig kosning þá skuli fara fram. Það getur verið, að forsetarnir eigi heima úti á landi, og eigi ilt með að ná saman, til þess að kjósa nýjan skrifstofustjóra, og heldur ekki er neitt ákvæði um það, hve lengi kosningin skuli gilda, ef nýr skrifstofustjóri er kosinn, hvort heldur það, sem eftir er af tíma þess, sem frá gekk, eða til 6 ára á ný. Þetta held jeg þurfi að skýra nánar, og vil því skjóta því til nefndarinnar, að athuga þetta til 3. umræðu, og vita hvort hjer er ekki ástæða til að kveða skýrara á, t. d. kjósa varamann. Það getur komið sjer illa, ef skrifstofustjóri deyr skömmu eftir þinglok og enginn er til að annast störf hans, þangað til þing kemur saman á ný. Sjerstaklega þegar svo stendur á eins og hjá oss, að þing kemur ekki saman nema annaðhvort ár.