07.08.1915
Neðri deild: 27. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1033 í B-deild Alþingistíðinda. (1857)
93. mál, hagnýting járnsands
Flutningsm. (Jón Jónsson):
Jeg er alveg samdóma háttv. 2. þm. Rvk. (J. M.) um það, að nauðsynlegt sje að athuga þetta frumv. vandlega. En jeg álít að það sje hlutverk þeirrar nefndar, sem jeg stakk upp á að yrði kosin. Aftur álít jeg, að þingið megi ekki umsvifalaust vísa máli slíku sem þessu frá sjer. Þetta mál getur haft mikla þýðingu fyrir land og lýð, og því nærri óforsvaranlegt, að sýna því ekki þann sóma, að rannsaka það í nefnd.