26.08.1915
Neðri deild: 43. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1037 í B-deild Alþingistíðinda. (1860)
93. mál, hagnýting járnsands
Ráðherra:
Jeg skal ekki tefja lengi tímann fyrir hinni háttv. deild, með því að ræða þetta mál. Jeg vildi að eins taka fram frá almennu sjónarmiði, að varla er rjett að veita einkaleyfi í þessa átt, fyrr en sjeð er, hverjir taka það að sjer, hverjar líkur eru til, að það verði notað o. s. frv. Þeir, sem slík einkaleyfi fá, verða að sjálfsögðu að leita fyrir sjer í öðrum löndum, ef eitthvað á að verða úr framkvæmdunum. En þá er mikið undir því komið, bæði fyrir lánstraust landsins og framkvæmd fyrirtækisins, hverjir þeir menn eru, sem einkaleyfið fá.
Nefndin virðist ekki hafa framkvæmt þær rannsóknir viðvíkjandi þessu máli, sem hún hafði ætlað sjer og átt að gjöra í upphafi.
Eins og sagt er óbeinlínis í nefndarálitinu, ef ekki beinlínis, er hugmyndin með því að fá einkaleyfið, sú, að selja það í hendur útlendu fjelagi, sem sams konar störf hefir með höndum, sem hjer, um ræðir. Nefndinni hefir ekki tekist að fá upplýsingar um þetta útlenda fjelag. Hún hefir snúið sjer til ensku stjórnarinnar, en hún hliðrað sjer hjá að gefa nokkrar upplýsingar. Hún bendir að eins nefndinni á, að fá þær hjá einhverjum banka eða upplýsingaskrifstofu. Það hefir nefndin ekki gjört, ekki talið sig hafa tök á því, á svo skömmum tíma, sem nú er til stefnu.
Sú fræðsla, sem nefndin hefir að gefa í þessu efni, er þá ekki mikil. Að eins það, að hingað hefir komið einhver Lambert, enskur maður, til þess að leita að járnsandi. Slíkan sand fann hann austur á Hjeraði, og taldi gjörlegt að vinna úr honum járn. Jeg efast ekki um, að þessi maður hafi komið hingað til landsins, en mjer er ekki kunnugt um, hver árangur hefir orðið af för hans, og það er nefndinni ekki heldur.
Í öðru lagi er nefndinni kunnugt um, að tveir nafngreindir menn hafi gjört tilraunir til þess, að fá leyfi Magnúsar Bl. Jónssonar prests í Vallanesi, til að gjöra höfn og önnur nauðsynleg mannvirki við Unaós. En það sjest ekki, hvort þær tilraunir hafa hepnast, eða ef samningar eru enn ekki til lykta leiddir, hvort líkindi eru til að þeir muni takast.
Í þriðja lagi segir nefndin að hálfur fossinn í Lagarfljóti sje leigður um 50 ár til aflframleiðslu til reksturs fyrirtækisins. En jeg veit ekki hvort nefndinni er kunnugt, hvort nauðsynlegt er eða ekki að fá yfirráð yfir öllum fossinum, og ef þess skyldi þurfa, hver á landið hinu megin að fossinum og hvort eigandinn er fáanlegur til að leigja sinn helming.
Fjórða atriðið sem nefndin telur, er í sjálfu sjer einskisvert. Þetta enska fjelag hefir sakir ókunnugleika snúið sjer til utanríkisráðherra Dana, til að fá einkaleyf til hagnýtingar á járnsandi á Íslandi. Jafnvel þó að fjelaginu sje alvara að vilja fá þetta leyfi, þá sannar það ekki, að það hafi mátt til að hagnýta sjer það, nema þá til þess, að »spekúlera« með það, eins og sumir gjöra.
Um fimta atriðið, sem nefndin telur, liggur ekkert skjallegt fyrir. Þetta, sem sagt er um peninga fjelagsins og starfsaðferðir, er að eina tekið eftir sögusögn annara manns. Mjer dettur ekki í hug að halda því fram, að hann skýri viljandi rangt frá. En þegar um jafn mikilsvert atriði er að ræða, er ekki heimild til að fara einungis eftir sögusögn, síst þess manns, sem hagsmuni gæti haft af því, að skýra rangt frá.
Mjer mun verða svarað því, að ekkert gjöri til, þó að allar upplýsingar vanti. Hjer sje að eins að ræða um heimildarlög fyrir stjórnina. En þó að svo sje, þá þykir mjer óviðkunnanlegt, að annar aðili löggjafarvaldsins, þingið, sje að setja þannig lög, alveg út í bláinn.
Þá segir í nefndarálitinu, að í sandinum sje 13,8% af járni. Jeg hefi vitanlega ekki vit á að dæma um það, hvort það mundi borga sig að vinna þetta járn. En jeg vil beina þeirri spurningu til nefndarinnar, hvort það hafi verið »kontrollerað«, að sandurinn hafi verið tekinn á þeim stað, sem greint er. Við þekkjum svo margar sögur úr Vesturheimi, þar sem menn hafa gint fólk til þess, að leggja stórfje í námufyrirtæki, með fölskum sýnishornum af gullsandi. Mjer dettur ekki í hug, að væna þá menn, er hjer eiga hlut að máli, um nokkra prettvísi, en þar sem um svona mál er að ræða, þá er það beinlínis skylda þingsins, að gæta allrar varúðar, hver sem í hlut á. Jeg efa það ekki, að leyfisbeiðendur sjeu heiðursmenn, en löggjafarvaldið verður að vera varkárt; það má ekki veita slík leyfi, eins og hjer er um að ræða, út í bláinn, án þess að hafa nokkuð verulegt að byggja á. Jeg vona, að háttv. framsögum. (J. J.) svari þessari fyrirspurn minni, ef honum er unt.
Jeg hefi enn fremur tvær athugasemdir að gjöra við brtt. nefndarinnar. Önnur þeirra er formlega eðlis. Í brtt. stendur, þegar »Alþingi« gjöri o. a. frv. Ætti að vera »löggjafarvaldið« o. a. frv. Svona er um gjaldið. Það er of lágt. Hví var það sett lægra en í einkaleyfislögum Páls Torfasonar?