31.08.1915
Neðri deild: 47. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1059 í B-deild Alþingistíðinda. (1870)
93. mál, hagnýting járnsands
Ráðherra:
Eftir því, sem mjer skildist, var beint til mín fyrirspurn um það, hvort þeir menn, sem nefndir eru á þgskj. 572, myndu verða látnir sitja fyrir leyfinu, ef þeir uppfyltu þau skilyrði, sem lögin setja. Það mun ekki vera vani, að stjórnin veiti stöður eða einkaleyfi opinberlega í þingi, og mun jeg því ekki svara þessu nema að litlu leyti. Stjórnin mun að sjálfsögðu veita, þessum mönnum einkaleyfið, ef hún hefir trú á þeim, þegar til kemur. En það gætu ef til vill komið einhverjir aðrir, sem byðu betri kjör, og tel jeg þá rjett, að þeir sætu fyrir leyfinu að öðru jöfnu.
Út af brtt. háttv. 1. þm. G. K. (B. K.) skal jeg geta þess, að mjer geðjast betur að þeim heldur en að frv. Það er að eins ein tillagan, sem jeg er í vafa um, og það er tillagan um að fella 2. gr. í burtu. Mjer skilst það svo, að ef 3. brtt. á þgskj. 603 verður samþykt, þá sje numin í burtu heimild einkaleyfishafa til að framselja rjett sinn í hendur öðrum. Við vitum, að það er varla því að heilsa, að nokkurt innlent fjelag geti í náinni framtíð ráðið yfir nægu fje til að reka þetta fyrirtæki. Ef framsalið er útilokað, má búast við, að innlendu mennirnir yrðu ekkert annað en leppar fyrir útlendinga. Vitanlega má að nafninu til stofna innlent fjelag, sem að einhverju leyti hafi búsetu hjer, en það yrði væntanlega ekki annað en leppur fyrir annað fjelag útlent. En jeg legg nú ekki svo mikla áherslu á þetta. Annars mun jeg yfir höfuð greiða atkvæði með brtt. háttv. 1. þm. G. K. (B. K.), því að mjer virðast þær yfirleitt vera til bóta. Það er ekki nema gott fyrir stjórnina, að löggjafarvaldið setji nokkuð nákvæm skilyrði fyrir slíkum einkaleyfisveitingum, og að þau skilyrði komi sem ákveðnast fram á þinginu. Það er ekki vert að hrapa að því, að segja lög um einkaleyfi. Þau geta vitanlega gefist vel, en þau geta líka orðið þingi og þjóð til vansa.