11.08.1915
Neðri deild: 30. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1074 í B-deild Alþingistíðinda. (1890)

91. mál, Þjóðskjalasafn Íslands

Flutnm. (Hannes Hafstein):

Jeg skal fúslega játa, að það hefði átt betur við, að þetta frumv. hefði verið stjórnarfrv., að hlutaðeigandi sýslunarmaður hefði snúið sjer til stjórnarinnar með málaleitun sína, og stjórnin síðan til þingsins, ef hún hefði aðhylst hana. En að svo var ekki gjört, táknar engan veginn það, að núverandi stjórn sje á móti því, sem hjer er farið fram á.

Mjer skilst, að það hafi verið af atvikum einum, að forstöðumaður Landsskjalasafnsins, sem hjer er hlutaðeig- andi, valdi þessa leið, að snúa sjer til þinga og stjórnar í einu, með því að semja þetta frumvarp og biðja tvo þingmenn að flytja það fyrir sig á þinginu.

Það er í rauninni ekki mikið nýmæli, sem hjer er farið fram á. Aðalkjarni frumvarpsins er sá, að laun landsskjalavarðarins verði hækkuð, því að hitt tel jeg engan veginn mikilsverða breytingu, að safninu verði gefið annað nafn um leið.

Það, sem mælir með því, að laun þessa sýslunarmanns verði hækkuð, er ekki eingöngu þær almennu ástæður, að allar lífsnauðsynjar eru nú komnar í miklu hærra verð en áður, heldur miklu fremur það, að starf þetta er nú alt annað en það var, er launin voru ákveðin. Það er orðið alt annað og miklu meira. Fyrir umönnun skjalavarðarins, sem nú er, hefir safnið vaxið meira en nokkrum gat til hugar komið í öndverðu.

Jeg skal ekki verða langorður um þetta mál. Það er öllum háttv. þingmönnum kunnugt, að safn þetta er tiltölulega ungt. Það var stofnað með auglýsingu landshöfðingja 1882, og var þá gripið tækifærið, er pláss losnaði í kirkjuturninum, þar sem þinghúsið, sem við nú sitjum í, hafði verið bygt svo stórt, að í það var hægt að setja landsbókasafnið og önnur söfn, sem í kirkjunni höfðu verið. Safnið var lagt undir landshöfðingjadæmið, og var svo fyrirskipað, að raða skjölunum í 7 flokka Var aðallega gjört ráð fyrir, að í safninu yrðu embættismannaskjöl, svo sem skjöl biskups, amtmanna, landfógeta og landshöfðingja.

Þannig stóðu sakirnar, þangað til núverandi skjalavörður kemur til sögunnar. Með sínum mikla og alkunna áhuga á því, að geyma alt það, sem við kemur sögu landsins, studdi hann að því, að reynt var að koma skipulagi á safnið og mynda úr því vísi til safns, sem að verulegum notum gæti komið. Þetta varð þess valdandi, að núverandi skjalavörður var skipaður, í stað landshöfðingjaritarans, sem áður hafði haft aðalumsjón með skjölunum.

Árið 1900 er svo gefin út ný reglugjörð fyrir safnið, og er þar gjört ráð fyrir, að það verði miklu víðtækara.

Skjalaflokkarnir verða 16 í stað 7 áður. Jafnskjótt og þessi nýja reglugjörð var komin út, tók núverandi skjalavörður til óspiltra málanna, og kappkostaði með sínum alkunna dugnaði, að bæta úr þeirri óreglu, sem verið hafði á safninu, þar sem skjölin höfðu legið í hrúgum eftirlitslaust, sem ekki var tiltökumál, því að þeir menn, sem landshöfðingjadæmið hafði á að skipa, voru alt öðrum störfum kafnir, og höfðu heldur ekki sjerstaka köllun til að vera jafnframt skjalaverðir.

Síðan þetta nýja fyrirkomulag komst á, hefir safnið fengið afarmikið af skjölum, og mikið verk verið lagt í það af hálfu núverandi landsskjalavarðar. Jeg veit til þess, að þó að upphaflega hafi verið til ætlast, að þetta væri hjáverk, ekki nema, 1–2 klt. vinna á dag, þá hefir núverandi skjalavörður langtímunum saman unnið daglega 10–12 klt. að safninu. Þetta hefir hann gjört vegna þess, að honum var það hjartans mál, að koma safninu svo áfram, að það gæti orðið að verulegu gagni.

Árið 1911 er reglugjörðin frá 1900 orðin ófullnægjandi. Safnið hafði vaxið svo mikið. Var þá enn gefin út ný reglugjörð og fyrirskipaðir 20 skjalaflokkar, allir merkilegir fyrir sögu landsins. Eru allir þessir flokkar þegar komnir á laggirnar, þó að mikið sje enn þá óaðgreint.

Nú eru í skjalasafninu yfir 20 þús. bindi og bögglar, og eykst það mjög hraðfara ár frá ári. Eftir kúbíkmáli er viðbótin meiri við skjalasafnið árlega heldur en við Landsbókasafnið. Þetta hefi jeg eftir skýrslu landsskjalavarðarins sjálfs, og hefi jeg ekki ástæðu til að halda, að hann fari hjer ekki rjett með, þó að jeg hafi ekki rannsakað þetta sjálfur.

Alt þetta mikla safn er, undir umsjón núverandi skjalavarðar, komið í það ástand, að svo má segja, að það sje komið til afnota. Enn er þó feiknamikið óunnið að safninu á marga vegu. Aðalverkefnið hefir hingað til hlotið að vera það, að koma safninu á laggirnar, að búa það til úr engu, ef svo má ægja. Nú er eftir að vinna úr því, og gjöra það aðgengilegra til afnota.

Í skjalasafninu eru auk embættaskjalanna mesti fjöldi af merkustu fornskjölum, þar á meðal um 600 skinnskjöl. Elsta fornritið er hinn gamli og merkilegi Reykholtsmáldagi frá því fyrir eða um 1200. Jeg get um þetta til þess að menn skuli ekki halda, að í safninu sje eingöngu embættisskjalarusl; þar eru jafnframt stórmerkileg heimildarrit, til þess að byggja á fyrir þá, sem halda vilja uppi sögu þessa lands.

Eins og jeg gat um, hefir verið unnið meira að safninu en til var ætlast upphaflega. Í síðustu reglugjörðinni er gjört ráð fyrir 2–3 stunda vinnu á dag. En eftir því, sem landsskjalavörðurinn hefir skýrt mjer frá, hefir það verið stöðug venja, að daglegi vinnutíminn hefir verið 6 stundir. Og langtímum saman hefir vinnutíminn verið lengri, 10–12 stundir, bæði fyrir landsskjalavörðinn sjálfan og aðstoðarmann hans.

Nú hefir landsskjalavörðurinn farið fram á, að laun hans verði hækkuð, svo að hann þurfi ekki að eyða kröftum sínum að alt öðrum störfum en þessu aðalstarfi hans. Maðurinn er dugnaðarmaður með afbrigðum, eins og öllum er kunnugt, og hefir líklega ritað meira en nokkur annar Íslendingur. En við því er ekki hægt að búast, að hann verði alt af sama vinnuvjelin. Árin færast yfir hann eins og aðra. Mætti þykja gott, ef hann gæti haldið áfram að vinna að þessu mikla safni. En til þess að hann geti lifað á því starfi einu, þarf að hækka laun hans.

Hann hefir farið fram á, að launin verði fyrst um sinn miðuð við laun landsbókavarðarins. En hann hefir 3000 kr. árleg laun. Jeg fyrir mitt leyti verð að segja, að þetta sje hóflega til tekið. Ef landsskjalaverðinum hefði verið launað líkt og landsbókaverðinum, sem þó er launað af skornum skamti, þá hefðu útgjöld landssjóðs til landsskjalavarðarins verið síðustu 8 árin 9900 kr. meiri en verið hefir.

Jafnframt því, sem farið er fram á, að bæta laun forstöðumanns safnsins, er farið fram á að breyta launum aðstoðarskjalavarðarins þannig, að þau verði hækkuð upp í 2000 kr. úr 1200 kr. Svo stendur á, að þessi maður hefir 2000 kr. í fjárlögum til annarra ritstarfa. Nú hefir hann tjáð sig samþykkan því, að svo framarlega, sem skjalavarðarlaun hans verði hækkuð, þá megi færa niður styrkinn til bókagjörðarinnar að sama skapi. Þetta þurfa því ekki að vera aukin útgjöld fyrir landssjóð. En hins vegar þykir manninum talsvert unnið við það, að föstu launin verði færð þetta upp, svo að það verði því minna, sem hann á undir högg að sækja hjá þinginu.

Jeg sje ekki ástæðu til að orðlengja þetta frekara, en vona að deildin taki frumv. vel.

Jeg vil láta þess getið, að mjer virðist ástæða til að koma fram með lítils háttar brtt. við frumv. til 2. umr. Það er einungis við orðalagið. Það stendur hjer í frumv. »landsskjalavörður skal skipaður«. Jeg tel rjett að taka það fram, að hann skuli skipaður af stjórnarráðinu, eins og vitanlega er átt við. Jeg vona að háttv. meðflutningsm. að frumv. hafi ekki móti því, að gjörast meðflutningsm. að brtt. í þessa átt.

Jeg sje ekki ástæðu til að nefnd verði skipuð í þetta mál. Jeg hygg, að engar sjerstakar upplýsingar þurfi, til þess að gjöra sjer það ljóst, hvort ástæða sje til að bæta laun þessa starfamanna landsins svo, að þau verði nokkurn veginn viðunanleg.