04.09.1915
Efri deild: 52. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 57 í B-deild Alþingistíðinda. (19)
108. mál, fjárlög 1916 og 1917
Steingrímur Jónsson:
Háttv. framsm. (M. P.) sakaði mig um helst til mikla bjartsýni (Magnús Pjetursson: Það var var ekki ásökun) út af því, sem jeg sagði um Eyjafjarðarárbrúna. En er það nú rjett? Jeg lagði til að Eyjafjarðarárbrúin yrði bygð síðara árið. Er það ekki rjett a:ð álíta að þessi vandræði, sem nú standa yfir, verði þá um garð gengin? Jeg sje ekki annað, en það sje í alla staði rjettmætt. Þessi svartsýni og þetta harmar kvein, sem nú ríkir, gjörir okkur áreiðanlega ekkert gott. Menn eiga að hegða sjer eins og forsjálir og skynsamir menn, búast við því versta, en vona það besta; vona jafnframt að það ástand, sem nú er, batni, og þetta jel, er hefir gengið yfir, stytti upp. Og það hefir dregist alt of lengi úr hömlum að setja þessa brú upp, jafn þarft þjóðnytjafyrirtæki og hún er. Hæstv. ráðherra mintist á það, að það þyrfti að breyta athugasemdinni, ef ófriðurinn hætti, en alt efni væri t. d. 50% dýrara en venja er til. En jeg hygg að það sje óþarfi. Hjer stendur að veittar sjeu 75 þúsund krónur til brúarbyggingarinnar, og við þá upphæð er byggingin bundin. Jeg hygg að enginn telji það vítavert, þó kostnaðurinn færi lítið eitt fram úr þeirri upphæð, en vitavert mundi það talið, ef hann yrði mjög mikið hærri, t. d. 50% meiri en veitt er. Og þá mundi stjórnin ekki heldur ráðast í framkvæmd verksins. Jeg hygg að jeg gæti, ef jeg hefði tíma til, bent á fordæmi fyrir því, að hætt hefir verið við fyrirtæki, er sjeð var að kostnaðurinn við þau mundi fara langt fram yfir fjárveitingu.
Háttv. framsm. (M. P.) misskildi dálítið það, sem jeg sagði um Grímsnesbrautina. Þessi braut á að ganga upp alla Árnessýslu, alt upp að Geysi, og um góðar sveitir, en jeg lagði ekki aðaláhersluna á það, heldur á það, að ef þessari braut væri frestað, þá væri það hið sama og að fresta að sama skapi öllum öðrum vegagjörðum. Þetta hefir líka áhrif norður í landi, vestur á landi og yfirleitt hvar sem er, og jafnt eftir 2 ár sem 10. Þetta kemur af því, er jeg sagði, að við gætum ekki unnið að vegagjörð fyrir meira fje en 150 þús. kr. ár hvert, vegna þess að okkur vantar menn og svo hækkar kaupgjaldið. Og. ef mjög mikið er dregið úr vegavinnuni, þá standa verkfræðingarnir og. vegavinnustjórarnir með tómar hendur. Og. það er dýrk fyrir landið. Það hefir stundum borið við, að landsverkfræðingurinn hefir haft fult í fangi með að láta alla vegavinnumennina. hafa nóg að gjöra.
Um 300 krónurnar til Reykjarfjarðarlæknisins væntanlega ef það að segja, að jeg hafði á móti því, af því að hjer er gengið inn á hættulega braut. Jeg man það, að eitt sinn var kapp lagt á það hjer á þingi, að fá sjerstakan lækni í Borgarfirði eystra. Þar er mjög erfitt að ná til læknis; það er mjer kunnugt um. Svo eru Grímseyingar, sem faktiskt engan lækni hafa, þó þeir eigi eða megi sækja lækni til Húsavíkur. Eiga þeir ekki líka rjett á lækni? Við verðum að hafa það hugfast, að við verðum að hugsa jafnt um allar útkjálkasveitir landsins.