03.09.1915
Neðri deild: 50. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1119 í B-deild Alþingistíðinda. (1938)
3. mál, kosningar til Alþingis
Ráðherra:
Það eru að eins örfá orð viðvíkjandi brtt. um ákvæðið um stundarsakir. Meiri hluti nefndarinnar vill hafa því breytt á þann veg, að landskjörið fari fram fyrst í júlí, en kosning í einstökum kjördæmum 18. sept. Verði þessi breytingartillaga háttv. meiri hl. samþykt, þá útilokar hún næstum það, að hægt verði að halda aukaþing í aumar. (Bjarni Jónsson: Þingið er ákvæðisfært, þótt sex menn vanti). Já! að vísu, en það er vafasamt, hvort svo væri í þessu tilfelli, vegna þess, að það vantaði alveg annað »elementið« í þingið.
Þá mundi og undirbúningstími undir hinar almennu kosningar 18. september verða alt of naumur, ef aukaþing yrði haldið að sumri. Og auk þessa er sá tími mjög óhentugur fyrir kjósendur, því að jeg man ekki betur en þá standi yfir göngur um alt land. Jeg teldi því mjög æskilegt, að þessu yrði breytt, kosningadagurinn ákveðinn nokkru síðar.