25.08.1915
Neðri deild: 42. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1152 í B-deild Alþingistíðinda. (1968)

62. mál, stofun Brunabótafélags Íslands

Eggert Pálsson:

Það er aðallega um aukaatriði, sem ágreiningur er um milli minni hl. og meiri hl., er jeg vildi segja nokkur orð. Ágreiningurinn er fólginn í því, hverjum sje að kenna dráttur sá, sem orðið hefir á framkomu nefndarálits minni hl. Sem formaður nefndarinnar skal jeg greina frá því, að það er undir hálfan mánuð síðan meiri hlutinn hafði lokið starfi sínu, og þegar nefndarálitið var undirskrifað, þá var minni hlutinn ekki við. En sökum þess, að jeg vildi hraða þessu máli sem mest, fór jeg með nefndarálitið til skrifstofustjóra og varð það að samkomulagi, að þegar búið væri að »setja« það, þá skyldi minni hlutinn fá það til afnota. Eftir þessu hefir minni hlutinn því haft 10–11 daga tóm til þess, að koma fram með sitt álit, því jeg veit, að skifstofustjórinn hefir gjört eins og jeg fór fram á.

En svo jeg snúi mjer ögn að málinu sjálfu, þá tel jeg að vísu fyrir landssjóðinn tryggara, ef endurtrygging fengist, heldur en skella því nær allri brunabótaáhættunni á hann einan. En nú hefir reynst svo, að lögin eru ómöguleg, eins og þau eru, af þeirri ástæðu, að slík endurtrygging hefir ekki fengist. Því liggur nú að eins tvent fyrir, annað hvort að leggja árar í bát, eða þá að breyta lögunum svo, að við þurfum ekki að vera upp á erlendu brunabótafjelögin komnir.

Spurningin er nú einungis sú, hvorn kostinn eigi að taka. Allir kannast við, að viðurhlutamikið sje, að alt það fje, sem hjer um ræðir, gangi út úr landinu, og víst er það, að búið er nú að borga í þessu skyni svo skiftir tugum miljóna króna. Því er það ánægjulegra og ábatavænlegra, að fjeð færi ekki út úr landinu. En þá liggur ekki annað fyrir hendi en að taka á sig áhættuna. Þessa áhættu hefir nefndin reynt að minka í byrjun, með því að útiloka lausafje að nokkru leyti. Innan handar er þá aftur síðar fyrir fjelagið, að taka meira lausafje til tryggingar, ef það við reynsluna sýnist óhætt eða ábatavænlegt. Áhættan minkar við það, að lausafje er ekki tekið, nema að 1/5 hluta við húseignir, og hver einatakur fær ekki að tryggja meira lausafje en 2000 kr., eins og meiri hlutinn stingur upp á í brtt. sínum. Og víst er það, ef breytingin kemst á., og innlent fjelag kemst á stofn, að brunahættan verður ekki meiri en áður hefir verið. Því að þar sem hver einstakur hefir 1/6 hluta ábyrgðarinnar, ef vátrygt yrði í þessu innlenda brunabótafjelagi, en erlend fjelög taka alt í ábyrgð, þá er síður að óttast, að menn kveiki í af ásettu ráði, eins og menn hafa haft grun um, að stundum hafi átt sjer stað.

Að áætla brunahættu út frá bruna hjer í Rvík síðastliðið ár, er engan veginn rjett, því bæði eru byggingar hjer í Rvík verðmeiri og samfeldari en víðast annarstaðar, svo að skaðinn af bruna hjer getur þar af leiðandi orðið stórfeldari en hvervetna annarstaðar, auk þess sem öllum ber saman um, að brunahættan hafi aukist hjer mjög mikið af gasinu.

Hvað brunahættuna snertir, þá lendir hún á tveimur eftir þessum lögum, sem sje landssjóði og sveitarsjóði, auk hlutana, sem einstaklingurinn ber. Það, að landssjóður tekur þetta að sjer, er held jeg ekki neitt ægilegt. Rjett er það hjá minni hl., að það á sjer ekki stað hjá öðrum þjóðum, að landið taki að sjer brunabót. En hjer er öðru vísi háttað en víðast annarstaðar. Hjer er um fáa privat efnamenn að ræða, er myndað geti innlent brunabótafjelag, líkt og á sjer stað hjá öðrum þjóðum, svo að ef nokkuð á að verða hjer úr framkvæmdum í þessum efnum, þá verður landið sjálft að bera ábyrgðina að mestu leyti.

Jeg verð nú að líta svo á, eftir undanfarandi reynslu, að þessi ábyrgð, sem landssjóður tekur þannig að sjer, sje ekki sjerstaklega áhættumikil. Að því er snertir áhættu sveitarfjelaganna, er líka hið sama að segja. Áhættan fyrir þau er engan veginn geipilega mikil. Þar sem lítil þorp eru, getur ekki verið um neina verulega áhættu að ræða, en þar sem fjölbygðara er, er áhættan vitanlega meiri. En þá er líka að taka tillit til þess, að stærri sveitarfjelög getur munað þó nokkuð um sinn hluta af iðgjöldunum, ef vel gengur.

Jeg álít því, að ekki sje um annað að gjöra en að ráðast í þetta fyrirtæki. Vogun vinnur og vogun tapar, segir máltækið, og það hlýtur að gilda hjer. Áhættan er ekki meiri annars vegar en gróðavonin hins vegar. Jeg álít alls ekki rjett af þessu þingi, að afgreiða málið með rökstuddri dagskrá. Það væri ómannlegt, þar sem um jafnmikið mál er að ræða.

Hins vegar get jeg búist við því, að háttv. þingdeildarmenn eigi erfitt með að átta sig á brtt. við frv. og á frv. í samanburði við lögin, eins og hvort tveggja liggur nú fyrir. Málið hefði að vísu verið greiðara aðgöngu, ef nefndin hefði skrifað upp nýtt frv. til laga í staðinn fyrir að stíla sínar breytingar sem breytingartillögur við þetta frv., sem aftur er breyting á gömlu lögunum. Út af þessu vil jeg taka það fram, að það, sem vakti fyrir nefndinni, var það, að með því móti, að skrifa alveg nýtt frumvarp, hefði verið stolið af málinu einni umræðu. Þá hefði það verið nú til 1. umræðu í staðinn fyrir að það er til 2. umræðu. Út úr þessum ruglingi, sem málið kann að sýnast vera í, vegna framsetningarinnar, má komast, með því að samþykkja brtt. okkar allar við þessa umræðu. Þá lítur frv. strax skilmerkilegar út á eftir. Og við 3. umræðu geta menn svo ráðið við sig, hvort þeir vilja samþykkja frv. eða ekki.