25.08.1915
Neðri deild: 42. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1155 í B-deild Alþingistíðinda. (1969)
62. mál, stofun Brunabótafélags Íslands
Sveinn Björnsson :
Jeg vildi segja nokkur orð út af rökstuddu dagkránni, sem hv. minni hl. (S. E.) hefir borið fram.
Eftir skoðun minni á þessu máli, sem fram kom í nefndinni, áður en hún klofnaði, get jeg búist við, að háttv. minni hl. gjöri ráð fyrir, að jeg greiði atkvæði með rökstuddu dagskránni. En þar sem það hefir orðið að ráði, að fara þá leið, sem meiri hlutinn fer hjer, þá mun jeg fylgja meiri hlutanum. Jeg er þeirrar skoðunar, að þetta ábyrgðarmálefni, þ. e. a. s. það mál, að koma vátryggingunum sem mest inn í landið, sje gríðarlega mikilsvert mál, og þess vert, að það sje athugað, bæði af stjórn og þingi og til þess varið því, sem það kostar. Þess vegna hefi jeg líka hugmynd og kemur fram í rökstuddu dagskránni, að stjórnin ætti að leita sjer aðstoðar sjerfróðs manns, undirbúa með hans aðstoð öll ábyrgðarmálefni, og leggja síðan uppástungur um þau fyrir þingið.
Nú hefir nefndin haft frv. til meðferðar um breytingar á vátryggingarlögum, sem gilt hafa í 8 ár. Efni þeirra breytinga snerta aðallega eitt eða tvö atriði þeirra laga. Þar sem þessi lög voru samþykt fyrir 8 árum, og þar sem jeg veit ekki til annars en að þjóðinni hafi fallið þau vel í geð, og að eins eitt atriði hefir verið því til fyrirstöðu að þau kæmust til framkvæmda, Sem sje það, að endurtrygging fjekst ekki, þá get jeg fallist á., að fara ekki, að þessu sinni, að umturna lögunum, heldur reyna að setja þá bót á þau, að þau geti komist til framkvæmda. Jeg get fallist á það með meiri hluta nefndarinnar, að sleppa skilyrði laganna um endurtryggingu, gegn því, að takmörkuð sje ábyrgð fjelagsins, eins og farið er fram á í breytingartillögum meiri hl. Og því fremur get jeg fallist á þetta., þar sem greinilega er tekið fram í 4. brtt, nefndarinnar, að strax og hægt sje að fá endurtryggingu, skuli endurtryggja. Þar sem hjer er að ræða um lög, sem þegar hafa verið lengi í gildi, og að eins hefir vantað herslumuninn til þess, að þau kæmust í framkvæmd, þá tel jeg rjett, að gjöra þá tilraun til að bæta úr þeim, sem hjer er farið fram á.
Háttv. minni hlutinn gjörir mikið úr áhættunni fyrir landssjóð. Ef litið er á skýrslur um virðingarverð húsa í kaupstöðum, þá sjest, að að eins í tveimur kaupstöðum er virðingarverð allra húseignanna meira en öll ábyrgð landasjóðs. Hættan getur því ekki orðið eina »effektiv« eins og háttv. minni hlutinn virðist vilja gjöra ráð fyrir. Þó að eldur komi nú enn upp á Akureyri, þá er mjög ólíklegt að öll Akureyri og Oddeyri brenni til ösku. Eldurinn gæti þá eins borist út að Fagraskógi, eins og jeg heyri að einhver er að tala hjer um. Háttv. minni hlutinn gjörir svo mikið úr hættunni, að það verður að hálfgerðri fjarstæðu.
Jeg mun því á, þessu stigi málsins greiða atkvæði með meiri hluta nefndarinnar en á móti rökstuddu dagakránni. Hins vegar væri mjer ánægja að því, að taka höndum saman við háttv. minni hluta og vinna að því með honum, að veitt verði í fjárlögunum upphæð, til þess að hægt sje að útvega sjerfræðings aðstoð, til þess að koma öllum ábyrgðarmálefnum landsins í gott horf.
Jeg vona, að háttv, deild vilji taka höndum saman við meiri hl. nefndarinnar, að gjöra tilraun til að bæta gömlu lögin, og vita hvort þau geta ekki fullnægt að sinni, á því sviði, sem þau ná yfir.