06.09.1915
Neðri deild: 52. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1191 í B-deild Alþingistíðinda. (1990)
142. mál, steinolía, bensín og áburðarolía
Flutnm. (Matthías Ólafsson) :
Eins og mönnum er kunnugt, er steinolía seld í pottatali eða ílátatali. Þetta er óhæfilegt, því að ílát eiga ekki saman nema að nafninu, en eru þó seld jöfnu verði; hvort þau eru stór eða lítil, væn eða ljeleg, og getur oft skakkað miklu á vigt tveggja íláta, sem seld eru sama verði.
Það. virðist því vera ástæða til að selja steinolíu og þær aðrar tegundir, sem í frumv. eru tiltektnar, eftir vigt eins og í öðrum löndum.
Hin ákvæðin í frumv. eru til þess, að kaupendur geti sjeð frá hvaða firma, fjelagi eða einstaka manni vörurnar eru, sömuleiðis nafn vörutegundar þeirra, sem ílátið inniheldur, þyngd ílátsins með innihaldi og síðast tölu eða númer ílátsins. Þessi ákvæði eru öll nauðsynleg, til þess að sjá megi af þeim þunga þeirra hvers um sig, svo að ekki verði um vilst. En þar sem eigi á að banna að selja þessar vörur í smásölu, eru þessi ákvæði ekki látin gilda um minni ílát, t. d. blikkbrúsa. o. s. frv.
En til þess að tryggja kaupendum rjett þeirra, ef misbrúkun eða svik yrðu viðhöfð, þá er það ákvæði sett í framv., að hverjum sölureikningi skuli fylgja sundurliðun yfir hvert ílát, þar sem tilgreind sje: 1) tala (númer) ílátsins, 2) nafn tegundarinnar, 3) þyngd ílátsins með innihaldi, 4) þyngd ílátsins sjálfa og 5) þyngd innihaldsins.
Ef seld væri ódýr vara undir nafni dýrari vöru, þá mætti segja að vantaði ákvæði um refsingu á því; en jeg býst ekki við, að þess mundi þurfa, því að jeg leit svo á, að brot á þessu heyrði undir hegningarlögin. En ekki er það svo að skilja., að ekki sje örgrant að þetta hafi komið fyrir hjer á landi.
Jeg lít svo á., að frumvarpið sje svo skýrt, að nefnd þurfi ekki að fjalla um það. Vænti jeg svo, að því verði vel tekið og vísað til 2. umr.