04.09.1915
Efri deild: 52. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 59 í B-deild Alþingistíðinda. (20)
108. mál, fjárlög 1916 og 1917
Kristinn Daníelsson :
Út af því, að háttv. framsm. (M. P.) skaut því til mín, að taka aftur brtt. mína á þgskj. 726, þá vil jeg verða við þeim tilmælum í þeirri von, að hún sæti þá betri;undirtektum við 3. umr., þar sem bæði háttv. 5. kgk. (G. B.), sem auk þess er landlæknir, og háttv. framsm., heita henni þá fylgi sínu.
Jeg skal ekki hafa á móti því, sem þeir, háttv. 5. kgk, þm. (G. B.), og háttv. frsm. (M. P.) sögðu, að meiri nauðsyn sje að fá hjeraðslækna út um land, en sjerfræðinga hjer í Reykjavík. En þeir vita líka vel, að sjerfræðingar þeir, er hjer ræðir um, þeir læknarnir Magnús Júlíusson og Ólafur Gunnarsson, hafa þegar numið fræðigreinar sínar, og fara ekki að taka að sjer hjeraðslæknastarf úti á landi. Og þó að þeir gerðu það, þá kæmi sjerþekking þeirra þar að litlum eða engum notum, þar sem hún kemur að miklum notum hjer. Jeg held því sjerstaklega fram, að sjerfræði sú, sem Magnús Júlíusson stundar, sje mjög þýðingarmikil hjer, og því sje rjett að styrkja hana. Að því vona jeg, að öll rjett rök liggi. Ef þetta er felt nú, þá verð jeg að skoða það svo, að Alþingi vilji ekki, að læknar stundi sjerfræði, og tel jeg ekki, að það horfi til framfara, enda í mótsögn við það, er Alþingi styrkir nú, með miklu fjárframlagi, einn sjerfræðing í læknastjett bæjarins, Jón lækni Kristjánsson.