10.09.1915
Neðri deild: 56. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1206 í B-deild Alþingistíðinda. (2010)
150. mál, bráðabirgðaverðhækkunartollur
Sigurður Eggerz:
Jeg þykist þurfa að gjöra grein fyrir atkvæði mínu í þessu máli. En áður en jeg byrja á því, virðist mjer óhjákvæmilegt að minnast nokkuð sögu dýrtíðarmálanna hjer á þingi í sumar.
Eins og kunnugt er, var fyrst skipuð nefnd í þau mál þegar í byrjun þings. Fyrsti árangurinn af starfi hennar mun hafa verið fuglafriðunarfrumvarpið, sem háttv. Ed. tók fyrir kverkarnar á. Þá kom næst fram frumv. til heimildarlaga, líkt fyrra árs heimildarlögum, en frábrugðið að því leyti, eins og frv. kom frá nefndinni, að rífari heimild var til þess að stöðva útflutning á innlendum vörum, en heimild stjórnarinnar til þessara takmarkana var þó breytt í Ed. En á meðan þetta frumv. var á ferðinni kom fram hjer í Nd. þingsályktunartill. um að skora á stjórnina, að tryggja landinu vörubirgðir. Sú tillaga var nú feld, þótt mörgum gengi erfitt að skilja orsakirnar til þessa, en hvað sem því leið, var þó þá farið að hraða framgangi heimildarlaganna, og voru þau samþykt um líkt leyti og hin tillagan var feld. Þá var og kosin ný Velferðarnefnd, og leit svo út, sem meiri hluti þings ætlaði að varpa allri sinni áhyggju upp á hana. Tók nú óðum að fjölga frumvörpunum. Eitt frumv. kom fram og var felt, um útflutningstoll, sem nam víst milj. kr. Annað kom hv. 1. þm. Rvk. (S. B.) með um dýrtíðarhjálp til allra, sem hafa lægri árstekjur en 2 þús. kr. Mundi það hafa hlaupið á 600 þús., kr., og tók hann það aftur, er hann sá forlög hins. Og enn hefir háttv. 5. kgk. (G. B.) flutt frv. um að lækka toll á aðfluttum vörum. Yfirleitt verður ekki sagt, að vantað hafi frumv. um þetta mál, síst nú á síðara hluta þingsins.
Jeg skal nú ekki tala mikið um frv., sem felt var hjer á dögunum, en út úr meðferð þess hefir þó orðið nokkur úlfaþytur hjer í bænum. Menn hafa að minsta kosti sjeð það, að blaðahringurinn, sem utan um þingið stendur, hefir tekið allhart á henni. Seinast gat og að líta það, í aðalblaði stjórnarinnar, að það hefði átt að vera felt af »þversummönnum«., eins og það blað svo smekkvíslega kallar Sjálfstæðisflokkinn, sem jeg telst til, og að það hefði sá flokkur gjört til þess, að bregða fæti fyrir stjórn og Velferðarnefnd.
Þegar litið er nú á það, hverjir rjeðu niðurlögum þessa miljónafrumvarps, þá munu þeir, sem rólegum augum líta á það mál, sjá það, að ekki eru miklar líkur til þess, að það hafi verið felt til þess, a,ð bregða fæti fyrir stjórnina, því í fyrsta lagi voru ýmsir þeirra, sem feldu það, úr Heimastjórnarflokknum, og þeir, sem þekkja afstöðu þess flokks til stjórnarinnar á þessu þingi, vita, að hann hefir ætíð verið styðjandi hana og stjórnin á alt sitt vesæla líf undir honum. Og í öðru lagi voru margir andmælendur frv. úr Bændaflokknum, og vita menn, að hann er enginn óróaflokkur í pólitík. Hann er miklu fremur viðurkent pólitískt »Idyl« hjer á þinginu, nokkurs konar friðarrjóður, þar sem ýmsar landsmálaskoðanir una saman í einingu andana og bandi friðarins. Að undanförnu veit jeg ekki betur en að sá flokkur hafi látið það afskiftalaust sem flokkur, hver væri ráðherra, og auk þess er það kunnugt, að nokkur hluti hans hefir verið núverandi stjórn fast fylgjandi, og t. d. er formaður flokksins, hæstv. forseti þessarar deildar, talinn einn af stuðningsmönnum hæstv. ráðherra. Af þessu, sem nú er sagt, sjest það, hve fjarstætt það er, að frv. hafi verið felt til þess, að bregða fæti fyrir stjórnina, enda þótt Sjálfstæðisflokkurinn greiddi líka atkv. á móti því, og eins hitt, að kenna Sjálfstæðisflokknum einum um örlög þess, þar sem sannanlegt er, að menn af öllum flokkum áttu þátt í að fella það, enda mátti og þegar í byrjun heyra það hljóð sumstaðar í blöðunum, að það væru bændur, sem væru að brugga þjóðinni hálfgjörð banaráð í þessum efnum, og að einhverjir flokkarígs-»spekúlantara«, og jeg líklega þar á meðal, myndu hengja sig þar aftan i. En jeg get nú tekið það fram af minni hálfu, og jeg hygg einnig fleiri manna, að þegar tekið var svo þvert í þetta mál, þá var það alls ekki af því, að þar lægi nein pólitík á bak við, — það álít jeg nauðsynlegt að komi skýrt fram, — heldur af því, að mönnum ofbauð, að fara nú, í ári eins og þessu, að leggja á landslýðinn toll, sem er nærri jafnmikill og allir aðrir tollar til samans, sem á henni hvíla áður. Og það, að jeg greiddi atkvæði með því, að fella frumvarpið bæði frá 2. umr. og nefnd, kom til af því, að jeg álít það mjög athugaverða stefnu í tollmálunum, að leggja toll á afurðir aðalatvinnuvega vorra, fiskveiðanna og landbúnaðarins. Af þessum ástæðum var það, að jeg fylgdist þarna að málum með bændum og fleirum, sem feldu málið frá nefnd. Jeg vildi sýna, að jeg fjellist ekki á þessa stefnu. Ef mjer hefði að eins þótt tollurinn of hár, þá hefði ekki verið ástæða til, að fella frv. frá nefnd. Í nefndinni hefði einmitt mátt laga það á þann hátt, að gjöra hann t. d. 2/3. lægri, og hefðu menn viljað það, þá hefði það verið ranglátt og óverjandi að fara með frv. eins og gjört var. En ástæðan til þess, að jeg áleit rjett að fella það þegar í stað, er sú, að mjer skilst, að Alþingi eigi sem mest að vinna að því, að skapa hvatir til þess, að gjöra atvinnuvegina sem sterkasta, en það dregur úr slíku, ef menn mega búast við þungum sköttum og tollum á þessa aðalatvinnuvegi. Ef einhver maður hefði nú ætlað sjer að leggja mikið fje í fiskiútveg t. d., og Alþingi tæki þá alt í einu það ráð, að gjöra þann atvinnuveg að tollstofni, ætli manninum dytti þá ekki í hug, að það gæti verið athugavert að leggja út í það fyrirtæki? Ætli slíkt mundi eigi aftra mörgum frá því, að leggja fram krafta sína óskifta til framleiðslunnar?
Jeg þykist nú hafa skýrt það nægilega, að ástæðurnar fyrir framkomu minni á dögunum voru ekki þær, að jeg vildi ýta stjórninni eða Velferðarnefndinni frá, þótt það kynni að hafa verið, út af fyrir sig, þarft verk, heldur hitt, að jeg tel með öllu óhæft, að tolla framleiðsluna í landinu. Jeg álít ekki heldur að menn eigi að hafa mál eins og dýrtíðarmálin til slíks, og þegar jeg flutti tillöguna um kornkaupin í sumar, þá tók jeg það skýrt fram, að jeg ætlaðist til þess, að henni yrði haldið utan við alla flokkapólitík, þó önnur yrði reyndin á.
Að því er snertir þetta frumvarp, þá er öllum ljóst, að það er bygt á sömu tollstofnum og frumvarp það frá Velferðarnefndinni, sem var á ferðinni hjer í deildinni á dögunum.. Mín afstaða til þessa frumvarps verður því hin sama og til fyrra frumvarpsins. Jeg er á móti því bæði af því, að jeg er »principielt« á móti því, að leggja tolla á þessa stofna, og svo af hinu, að enn þá hefir ekki verið sýnt fram á, að þörf væri á nokkrum nýjum tollum. Háttv, flutningsmenn frumvarpsins afhentu mjer frv. í fyrrakvöld og báðu mig að bera það undir Sjálfstæðisflokkinn, en áður voru þeir búnir að bera frv, undir hina flokkana og tryggja því leið í gegn um þingið. Auk þess sjá allir að tíminn, sem okkur er gefinn til að athuga frv., er svo lítill, að við gátum alls ekki áttað okkur nægilega á því. Frá mínu sjónarmiði er það mjög óhyggilegt að halda heilum flokki utan við slíkt vandamál, sem þessi dýrtíðarráðstöfun er. Jeg fyrir mitt leyti hafði búist við því, að þeir, sem urðu sammála um að fella miljónafrumvarpið, hefðu einnig í sameiningu athugað, hver skyldu örlög þessa frumvarps, en sú hefir þó ekki orðið raunin á. Og mundi þó síst af öllu hafa verið nauðsynjalaust, að allir hefðu haft tækifæri til að íhuga þessi tollmál sem best. Því væri nú hægt að sanna fjárþörf landssjóðs, þá sjá allir, að tekjufrumvarp þetta er mjög óábyggilegt, því hvar eru tollarnir, ef vörurnar falla í verði? Þá er enginn tekjuauki að frumvarpinu. Og hvernig er þá sjeð fyrir fjárþörfinni? Auk þess er þess að gæta, að svo framarlega sem brýn nauðsyn er að fá aukna tolla, þá er nú búið að flytja svo mikið út af fiskinum, að nú mun ekki mikið meira en 20% vera eftir. Það var einn af mestu fiskkaupmönnum þessa bæjar, sem sagði mjer þetta, og jeg hygg að það muni vera nærri lagi.
Í gegnum öll þessi dýrtíðarmál og dýrtíðarráðstafanir ganga tveir straumar. Annar er sá, að sjá um að hjer í þessu landi verði nóg til af matvöru, en hinn er að tryggja einstaka menn gegn dýrtíðinni. Ef svo fer, að ekki verða til nægilegar birgðir í landinu af útlendri vöru, þá koma hinar ráðstafanirnar að engu gagni. Þær tillögur, sem komið hafa fram í því skyni að hjálpa einstaklingnum, hafa vægast sagt verið ærið barnalegar. Á jeg þar aðallega við frumv. háttv. 1. þm. Rvk. (S. B.), sem fer í þá átt, að allir, sem hefðu tekjur undir 2000 kr.; skyldi fá dýrtíðaruppbót. Var þessi hjálp áætluð, ef jeg man rjett, frá c. 50 kr. upp í 120 kr. á heimili. En bæði var nú það, að þessi hjálp hefði litið gagnað þeim, sem áttu í verulegri nauð, og svo hitt, að hjer var um útgjöld að ræða, sem námu c. 600 þúsund krónum, og mikið af því fje hefði farið til framleiðanda og annarra, sem alls enga þörf höfðu fyrir hjálp, en standa sig betur en nokkurn tíma áður. Í raun og veru hygg jeg, að önnur betri dýrtíðarráðstöfun verði ekki gjörð en sú, sem jeg drap á þegar tillagan um kornkaupin var til umræðu, að selja fátæklingum, þegar harðnar í ári, matforða við innkaupsverði. En til þess, að þetta geti orðið, má ekki gleyma 1. boðorðinu í þessu máli: að korntryggja landið. Jeg vil að eins taka það fram, að jeg geng að sjálfsögðu út frá því, að kaupmenn og aðrir atvinnurekendur, sem stríðið hefir flutt gull og græna skóga, hækki laun daglaunamanna sinna, því þeir, sem lifa af handavinnu sinni, súpa versta seyðið af stríðinu.
Jeg skal svo ekki þreyta háttv. deild á langri ræðu. Að eins vil jeg endurtaka það, að jeg er á móti frumvarpinu, af því að jeg vil enga tolla leggja á framleiðsluna í landinu; og þó því sje haldið fram, að þetta frumvarp sje að eins til bráðabirgða, þá trúi jeg ekki þeirri fullyrðingu, því jeg er sannfærður um það, að þegar atriðið er búið, þá þykir nauðsynlegt að fylla skarðið í landssjóðnum, sem kemur, ef þessi 300 þús. kr. tollur yrði upphafinn. Og þetta skarð verður uppfylt með því að leggja álíka toll og þennan, eða hærri, á framleiðsluna áfram. Reynslan um hækkunina á kaffi- og sykurtollinum bendir í þessa átt. Og reynslan er ólygnust.