29.07.1915
Efri deild: 18. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 247 í B-deild Alþingistíðinda. (202)

53. mál, Stýrimannaskólinn í Reykjavík

Guðmundur Björnson:

Af því að það er ekki orðið svo mjög sjaldgæft í seinni tíð, að á þingi rísi deila um það, hvort taka beri útlend orð upp í lagamál vort, vil jeg leyfa mjer að gjöra örfáar athugasemdir við ræða háttv. 1. kgk. þm. (E. B.). Hann sagði, að ef maður leitaði í fornritum okkar, þá sæi maður, að rithöfundar frá fyrri öldum hafi tekið upp í íslenskuna útlend orð. Þetta er satt, að þeir gjörðu það stöku sinnum. En þegar jeg hefi litið í fræðirit frá þeim öldum, þá hefi jeg einatt furðað mig á því, að fremur sjaldgæft virðist það hafa verið, að út- lend orð væru tekin upp í málið. Þeir gömlu fræðimenn smíðuðu oftast ný orð, þegar ekki voru í alþýðumáli til orð yfir þau hugtök, sem þeir vildu nefna, og mig hefir oft furðað á því, hve sparir þeir voru á að taka upp útlend orð.

Það er til einn þýskur fræðimaður, sem hefir safnað öllum lánsorðum, sem til eru í íslenskum fornritum, en hann hefir farið full langt í þá áttina, og tekið heldur meira. en minna, því að hann telur þar ýms orð, sem eru góð og gild að allra dómi. Jeg á þetta orðasafn og hefi oft borið það saman við ýmsar íslenskar orðabækur t. d. Fritzner o. fl. Jeg hefi furðað mig á því hve lítill hluti af þessum lánsorðum hefir komist inn í íslenska tungu.

Það er annars furðulegt, að af öllum útlendum orðum, sem tekin hafa verið upp í íslensku á fyrri öldum, eru fyllilega 2/3. dauð; þau hafa aldrei náð að festa rætur í málinu.

Þetta segi jeg til þess að benda á, að ef vjer eigum að fara að dæmi feðra vorra, þá verðum vjer að halda fast við íslenskuna, og gjöra svo lítið að því að taka upp í hana útlend orð, sem frekast er unt.

Það er líka margreynt, að þegar tekin hafa verið upp góð íslensk orð og sett á móti útlendum orðum, sem farin voru að festast í málinu, þá hafa íslensku orðin útrýmt þeim.

Víst er um það, að ýmsar aðrar þjóðir eru farnar að láta sjer einkar ant um móðurmál sitt. T. d. er svo um eina helstu mentaþjóð nútímans, Þjóðverja. Þeir láta sjer mjög ant um að halda móðurmáli sínu hreinu og hreinsa úr því útlend orð.

Jeg held að það sje skylda okkar við móðurmálið, að taka sem minst upp í það af orðum úr erlendum málum, bæði í ræðu og riti. Jeg játa það fyllilega, sem háttv. 1. kgk. þm. (E. B.) sagði, að það skiftir minna um þau útlend orð, sem aldrei koma á alþýðu varir. Það er fyllilega rjett hjá háttv. 1. kgk. þm. (E. B.).

Sjeu tekin upp íslensku orðin, sem jeg kann lang best við, ætu vísindalegu orðin á grísku eða latnesku að standa í svigum fyrst um sinn. Jeg álít, að það geti ef til vill verið varasamt að sleppa þeim alveg. En þegar þau eru höfð í svigum með íslenska orðinu, þá getur það aldrei misskilist. Jeg felli mig vel við íslensku orðin, sem gjört er ráð fyrir í frumvarpinu, og ætla því að greiða þeim atkvæði. Jeg held að hv. síðasti ræðumaður (E. B.) geti og vel sætt sig við þau, sjeu þau útlendu tekin með í svigum.