11.09.1915
Neðri deild: 57. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1254 í B-deild Alþingistíðinda. (2026)

150. mál, bráðabirgðaverðhækkunartollur

Björn Kristjánsson:

Þetta er ekki í fyrsta skifti, sem vafasömum frumv. hefir verið varpað inn á þingið á síðustu stundu. Það hefir verið gjört á undanförnum tveim þingum, og sama hefir raunin orðið á þessu þingi. Um daginn var þannig komið með yfirgripsmikið frumv. undir þinglokin, og það var ekki hvað síst ástæðan til þess, að jeg greiddi atkvæði móti því frumvarpi. Ekkert væri eðlilegra, en að slík mál væra undirbúin í þingbyrjun, eða helst fyrir þing. Og ástæðan til þess var enn ríkari þá, því útlitið var miklu verra þá en nú. Síðan höfum við sjeð, að sumarið hefir verið ágætt, og dýrtíðarhorfurnar eru minni en í þingbyrjun. Mjer virðist þessi aðferð benda til þess, að talsvert los sje komið á löggjafarstarfið, og það er eðlilegt, að útkoman verði eftir því, þar sem mönnum gefst enginn tími til að athuga jafnmikil vandamál og hjer er um að ræða.

Jeg hefi það sjerstaklega við þetta frumv. að athuga, að því er ætlað að verka aftur á bak. Það er ekki venja um nein lög hjer á landi, að því er mjer er kunnugt um. Þess vegna hefi jeg komið með brtt. þess efnis, að þeir menn, er þegar hafa selt vöruna, skuli vera undanþegnir því, að gjalda þennan toll. En meðal annars stafar þetta óyndisúrræði, að láta lögin gilda aftur fyrir sig, af því, að frumv. kemur ekki fyrr fram en í ótíma er komið.

Jeg vil benda á það, að þegar vara er seld til útlanda, þá er hún ekki lengur talin eign þess, sem seldi, heldur þess, sem keypti, samkvæmt almennum viðskiftalögum allra landa og Íslands sömuleiðis. Því er það, að ef jeg hefi keypt vörur t. d. í Englandi, þá dettur engum í hug að leggja eftir það toll á seldu vöruna. Það er eina rjetta atriðið í þessu efni, að láta vöruna vera gjaldfrjálsa.

Með brtt. á þgskj. 918 hefi jeg reynt að lappa upp á 2. brtt. flutnm. á þgskj. 909. Menn verða að gæta að því, að venjulega er nú milliliður milli framleiðandans og kaupmannsins, sem sje umboðsmennirnir. Fyrir 10–20 árum mundi ekki hafa verið um þessa menn að ræða, en nú er orðið breytt frá því, sem þá var. Fyrir því hefi jeg flutt þessa brtt., sem heimilar, að hægt sje að ná til framleiðandans, þótt þriðji maður flytji vöruna út, sem hlýtur að eiga að greiða gjaldið. Vænti jeg að þessi brtt, verði samþykt, ef sú aðaltillaga mín verður ekki samþykt, sem fer fram á það, að undanþiggja allar seldar vörur þessum tolli, sem er sú eina aðferð, sem við á og þingið getur verið þekt fyrir, og hefi jeg alls ekki tekið hana aftur, eins og háttv. aðalflutningsmaður (P. J.) hjelt, heldur er brtt. á þgskj. 918 borin fram í því skyni, að hún að sjálfsögðu verði samþykt. Jeg vænti því, að aðaltill. verði samþykt, svo framarlega sem ekki eru samtök um, að fella allar tillögur, sem fram koma til breytinga, eins og mjer hálfvegis skildist á háttv. aðal-flutnm. (P. J.), því að enginn, sem þekkir til almennra viðskiftalaga, getur verið á móti till.

Þá er 3. brtt. á þgskj. 904, sem fer fram á það, að tolli þeim, sem innheimtist, skuli, svo fljótt sem unt er, komið í gullmynt. Þessi brtt. hnígur meira að því, að minna á, að landið megi ekki vera gullmyntarlaust. Hefi jeg bent á þetta í fyrra, þegar farið var fyrst að hreyfa dýrtíðarráðstöfunum, og sömuleiðis á þinginu nú. Vjer eigum 4¼ milljón króna í seðlum, sem ekki gætu orðið oss til nokkurra bjargráða, ef sambandið milli Danmerkur og Íslands slitnaði. Vjer getum notað seðlana í innanlands-viðskiftum, en þeir eru einskis virði, þegar um það er að ræða, að kaupa vörur t, d. frá Vesturheimi, ef sambandið við Danmörku slitnar. Þess vegna er oss nauðsynlegt að hafa gullmynt til í landinu, og mun sýna sig, hverja þýðingu það hefir, ef Danmörk kemst í stríðið. Og fyrstu bjargráðin, sem þingið hefði átt að hugsa fyrir, var auðvitað, að landið hefði gullmynt að kaupa fyrir.

Þá er síðasta brtt. á þgskj. 904. Jeg hefi gjört þessa tillögu vegna þess, að jeg hefi hugsað, að frumvarp þetta væri ekki framflutt eingöngu til þess, að auka tekjur landssjóðs, þvert ofan í alt dýrtíðarskrafið, heldur einkum til þess að hlaupa undir bagga með þeim hjeruðum, sem hart verða úti, vegna dýrtíðar. En þá þykir mjer miklu betur fallið, að styrkurinn til fátæklinga verði fólginn í atvinnu, heldur en í ölmusu. Jeg vona, að þessi tillaga verði samþykt, ef ekki hafa verið gjörð samtök um annað, því að þetta er miklu hollara. Jeg skal taka það fram, að jeg ætlast til, að þessi lán verði veitt úr landssjóði, án tillit til tollsins, svo grípa megi til hvers þess fjár landasjóðs, er fyrir hendi er. Jeg er viss um það, að þessi breytingatillaga mun mælast vel fyrir. Skal jeg leyfa mjer að óska nafnakalls um hana.

Skal jeg svo ekki þreyta menn á lengri ræðu, en að eins taka það fram, að jeg er ekki mótfallinu svona frumv. í sjálfu sjer, þó það þyrfti miklu víðtækari lögun, en jeg fer hjer fram á. Jeg er meðmæltur lágu, almennu útflutningagjaldi, alveg eins og jeg hefi hefi verið hlyntur almennu lágu aðflutningsgjaldi, enda verður ekki önnur leið farin í landi, sem eins og Ísland má heita tollgæslulaust. Jeg mun því, ef til vill, greiða atkvæði með frumv., ef umbætur þær, sem felast í tillögum mínum, verða teknar til greina, þó þær breytingar nái alt of skamt.