26.08.1915
Neðri deild: 43. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1260 í B-deild Alþingistíðinda. (2032)
109. mál, skipun dýralækna
Framsögum. meiri hl. (Bjarni Jónsson):
Í rauninni er alt það tekið fram í nefndarálitinu, sem ástæða væri til að segja. Það er öllum kunnugt, að um margra ára bil hefir staðið fjárveiting í fjárlögunum handa dýralækninganemendum. En oft hafa þessir styrkir farið misjafnlega; ýmsir hafa byrjað á námi, en hætt við. Nú hefir einn efnilegur maður nýlega lokið prófi í dýralækningum. Hann hefir komið að máli við landbúnaðarnefndina og ráðherra, og boðið sig fram til þjónustu landsins, ef embætti væri til, eða yrði til. Það væri nú enginn sparnaður að hafna honum. En Alþingi verður að líta á hitt, að það er einungis að kasta þessum peningum í sjóinn, er veittir eru þessum mönnum til náms, ef starfskraftar þeirra eru ekki notaðir, er þeir hafa lokið námi sínu. Það mætti nú kann ske segja, að þetta væri engin höfuð ástæða, til þess að bæta við embætti, ef litið væri svo á, sem það væri óþarft, því þá væri það einungis að kasta peningum á glæ að nýju. En þegar svo er háttað, að heill landafjórðungur bíður þess með óþreyju, að þetta embætti sje stofnað, þá sje jeg enga ástæðu til þess að spyrna á móti því. Og nú stendur allur Austfirðingafjórðungur sem einn maður og óskar eftir að fá dýralækni. Jeg þarf víst naumast að fara að rekja hjer, hvílíkur nytsemdarmaður dýralæknirinn er; jeg skal þó að eina leyfa mjer að drepa á eina ástæðu, er nægir út af fyrir sig, til þess að hann eigi fullan rjett á sjer. Sú ástæða er dýralæknisstimpillinn, er settur er á útflutt kjöt. Reyndar veit jeg að gripið hefir verið til þess óyndisúrræðis, að fela þetta starf á hendur hjeraðslæknum. Þeir þurfa auðvitað eigi að læra mikið, til viðbótar við kunnáttu sína, til þess að geta fullnægt starfinu þess vegna. En hver maður má skynja, að hjeraðslæknirinn getur ekki gjört kjötstimplan að aðalstarfi sínu í sláturtíðinni. Enginn læknir lætur sængurkonu þreyja dauðvona, til þess að gefa sig að nokkrum kjötskrokkum. Hins vegar mætti vafalauat haga svo til á Austfjörðum, að einn dýralæknir gæti annast kjötstimplun á öllum fjörðunum. Og þar sem stimpillinn hækkar kjötið í verði um 8 kr. á tn. hverja, þá er dýralæknir ekki lengi að borga kostnað sinn á þennan hátt, og ekki einungis það, heldur og miklu meira en nemur kostnaðinum við alla dýralækna landsins. Þess utan er öllum kunnugt, hve miklum skaða það getur oft og einatt varnað, að hafa menn, er geti læknað dýrar skepnur, sem sárt væri að sjá deyja ella hjálparlausar, og þarf meira að segja ekki annað til en að tálga upp hóf á hesti, er annars myndi verða ónothæfur um lengri tíma. Jeg þarf ekki að telja upp fleiri dæmi af þessu tagi; það eru svo margir bændur hjer í háttv. deild, og margir, sem skilja þetta. Jeg skal þess vegna ekki tala frekar um þetta að sinni, nema svo fari, að háttv. framsm. minni hl. (G. H.) neyði mig til þess að standa upp aftur. En jeg vona, að menn hleypi þessu frumv. til 2. umr. bardagalaust, og án þess að lengja umræðurnar meira.