01.09.1915
Neðri deild: 48. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1280 í B-deild Alþingistíðinda. (2053)
134. mál, dýrtíðaruppbót handa embættis-og sýslunnarmönnum landssjóðs
Jón Magnússon:
Þetta frumv. er flutt að nokkru leyti í samræmi við það, sem gjörðist fyrir skömmu á prívatfundi í Sameinuðu þingi, þar sem það var samþykt, að bæta eitthvað kjör vissra starfamanna landsins. Nú finn jeg ekki ástæðu til, að tala svo sem neitt fyrir því i þetta sinn, bæði af því, að jeg get vel búist við, að samtök sjeu nú orðin um að fella það þegar hjer í deildinni, þótt undarlegt sje, og svo af því, að það sjest glögt á frumv. sjálfu, hvað þar er farið fram á. Annars get jeg vísað til hæstv. ráðherra, sem hefir samið frumvarpið, en hygg, að hjer þurfi ekki málalengingar um einstök atriði. Það hafa ýmsir talið rjett, að bætt verði við starfsmenn. þá, sem hjer er um að ræða, eins og t. d. símamenn og fl., sem lágt eru launaðir. Jeg sje ekki ástæðu til, að stinga upp á nefnd.