08.09.1915
Neðri deild: 54. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1283 í B-deild Alþingistíðinda. (2057)
134. mál, dýrtíðaruppbót handa embættis-og sýslunnarmönnum landssjóðs
Ráðherra:
Jeg get verið þakklát háttv. nefnd fyrir undirtektir hennar undir þetta mál, þótt ekki hafi hún að öllu fallist á tillögur frv.
Viðvíkjandi brtt. við 2. gr., þá getur það verið álitamál, hvort ekki ætti að minsta kosti, að halda fimm fyrstu liðum frumv.-greinarinnar, svo að hámarkið yrði 2500 kr. laun. En ekki er það
þó neitt aðalatriði. Jeg leit svo á, þegar jeg samdi frumv., að rjett væri, að veita uppbót þeim embættis- og sýslunarmönnum, sem hefðu minna en 2800 kr. laun. En úr því, að nefndin hefir komist að þessari niðurstöðu, þá giska jeg á, að þingið verði henni samdóma, þótt jeg geti ekki felt mig við tillögur hennar að þessu leyti, sjerstaklega um 5. lið 2. gr.
Ekki get jeg fallist á þá tillögu nefndarinnar að lækka uppbótina fyrir börnin úr 15 kr. niður í 10 kr. Þar á móti er sú tillaga hennar til bóta, að felt sje hámark þess styrks miðað við barnatöluna. Jeg hygg að það hafi nánast verið af athugaleysi, að þessi setning komst inn í frv.
Þá færir nefndin hámark fyrir uppbót til einhleypra manna úr 1800 kr. launum niður í 1500 kr., og jafnframt leggur hún til, að lækka hundraðagjaldið til uppbótar handa þeim. Nefndin telur ekki ástæðu til að hlynna að einhleypum mönnum sjerstaklega; samt má telja unandi við tillögur nefndarinnar í þessu efni, þótt næsta lág verði uppbótin handa þeim, sem lægst laun hafa.
Um síðustu málsgrein 6. gr. skal jeg taka það fram, að jeg mun ekki hafa skýrt nákvæmlega rjett frá launakjörum þeirra, sem hjer um ræðir, þ. e. símafólksins. Hjer ætti að standa »undir 1800 kr.«, og vona jeg, að nefndin taki þetta atriði. til íhugunar, hvort sem hún nú tekur tillögu sína aftur eða kemur með brtt: við 3. umr. í samræmi við það, sem jeg hefi sagt.