12.07.1915
Neðri deild: 4. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1303 í B-deild Alþingistíðinda. (2081)
95. mál, stofnun Landsbanka
Bjarni Jónsson:
Það kom mjer mjög á óvart, þetta frumv., þegar jeg sá, að sú nýja stjórn er svo huguð, að leggja út í að stofna þetta nýja embætti, alveg að óþörfu. Hjer á landi er almenn mótstaða móti stofnun nýrra embætta, og það þótt um þörf embætti sje að ræða, hvað þá ef þau eru allsendis óþörf. Er það næg ástæða móti stofnun hálaunaðra embætta, ekki síst nú á tímum, í þeirri dýrtíð, sem styrjöldin veldur.
Enn má nefna þá ástæðu, að nýlega hefir verið skipuð nefnd, til að endurskoða launalöggjöf landsins, og er varla vert, að vera að stofna nýtt embætti með 6 þús. kr. árslaunum, áður en sú nefnd hefir lokið störfum sínum og ákveðið hámörk embættislauna. Hinsvegar er meiri þörf á öðrum nýjum embættum, sem ekki er ætlast til að verði hærra launuð en svo, að þau verða aldrei svo há, að þau nái því lágmarki, sem nefndin setur, hversu lágt sem hún setur það.
Jeg bendi til þess, að fyrir þinginu liggur nú beiðni frá læknadeild Háskólans, um styrk til kenslu í nýjum greinum læknisfræðinnar hjer við Háskólann. Það er synd, að láta þá ágætu menn, sem þar eru, slíta kröftum sínum og ganga sjer til húðar, bara til að spara einar 2,800 kr. á ári. Sýnist mjer, að það ætti að liggja þinginu nær, að verða við þeirri beiðni en að vera að setja á stofn þetta nýja embætti, sem annaðhvort er alsendis óþarft, eða komast má af án, þegar það er nú á hvers manns vörum, að spara vegna hinnar yfirstandandi styrjaldar og dýrtíðar þeirrar, sem hún býr oss. Þetta er nú almenna ástæðan, sem jeg hefi fram að færa á móti þessu frumvarpi, og öðru frumv., sem hjer kemur á eftir á dagskránni.
Jeg er háttv. 1. þm. (G.-K. (B. K.) alveg sammála um, að þetta lögfræðingsembætti við bankann sje alveg óþarft. Jeg fæ ekki sjeð, að lögfræðingurinn yrði vitrari, þó hann væri embættismaður bankans, en ef hann væri ráðunautur bankastjórnarinnar. Jeg hygg, að bankastjórnin gæti fengið bestu lögfræðinga til ráðuneytis við sig fyrir miklu minna fje. Auk þess er jeg viss um, að besti lögfræðingurinn fengi aldrei þetta embætti, hver stjórn sem sæti að völdum. Jeg get ekki sjeð að bankanum yrði hólpnara, þótt lögfræðingurinn sæti í stjórn hans. Jeg hefi ekki orðið þess var, að lögfræðingar sjeu vitrari en aðrir menn. Þvert á móti hefi jeg staðið þá að því, að vera sljóvir og skilningslitlir í sinni eigin grein, hvað þá í öðrum málum,
Það kemur ekki þessu máli við, sem talað var um þennan »korrespondent«, ef jeg má nota það dýra orð. En jeg held, að það sje fremur lítið gjört úr Íslendingum, ef þeim er ekki treystandi til að annast brjefaskifti bankans við önnur lönd, svo að þessi »korrespondent« þurfi fyrir þær sakir að vera útlendur maður.
Svo er nú enn ein almenn athugasemd, sem vel getur átt við þessa umræðu. Hana má orða, eins og karlinn sagði: »Jeg er nú svo gamall sem á grönum má sjá, þó hefi jeg aldrei sjeð svo langan gaur í jafnlítilli grýtu«. Mjer finst það vera nokkuð íburðarmikið að hafa þrjá bankastjóra með 6 þúsund króna launum til að ráðslaga um, hvort framlengja skuli fyrir mig 200 kr. víxil. Það getur verið, að þessi lögfræðingur eigi að fá 6 þús. kr. laun fyrir að sitja og hugsa.
Mjer sýnist satt að segja, að þetta fyrirkomulag, sem verið hefir, sje gott. Það sýnist vera rjett í alla staði, að þingið velji menn til þessa eftirlits, og það er engin ástæða til að ætla, að þingið fari að eins og fífl og velji þá menn til eftirlitsins, sem ekki hafa vit á því, sem þeim er ætlað að gjöra. Jeg vil ekki hrækja framan í þetta þing, og jeg vii ekki láta hrækja framan í mig.
Það er svo langt frá því, að jeg álíti að það þurfi að bæta þessum þriðja bankastjóra við, að jeg held, að annar bankastjórinn geti setið 6 mánuði ársins í Lundúnum eða annarstaðar úti í heimi til að útvega landinu lánstraust og bæta markaðinn fyrir íslensk verðbrjef. Þó að hann þyrfti að launa með 50 þús. kr., þá álít jeg það tilvinnandi og vildi ekki spara við hann, ef hann gæti gjört það, sem í þessu efni þarf að gjöra. Hinn bankastjórinn nægði þá til að sitja heima og framlengja mína víxla og þeirra annarra, sem á víxlum lifa. Það er svo lítið starf, að ekki getur verið að tala um þriggja manna stjórn við bankann til að inna það af hendi. Það eru þessar almennu athugasemdir, sem jeg vildi gjört hafa við þessa umræðu. Jeg sje svo ekki ástæðu til að orðlengja þetta meira að sinni, en býst við, að jeg muni síðar gjöra nánari athugasemdir út af þessu.