12.07.1915
Neðri deild: 4. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1314 í B-deild Alþingistíðinda. (2087)
95. mál, stofnun Landsbanka
Bjarni Jónsson:
Jeg bjóst ekki við því, að hæstv. ráðherra færi að ráðast hjer á mig með kerskni og brigslum. Jeg hafði ekki stefnt neinu til hana persónulega, og hjer var ekki að ræða um nein mín einkamál, sem hann þyrfti að skifta sjer af. Honum hefði staðið alt annað nær. Jeg sagði það, sem jeg sagði, til þess að benda á það, að hjer sje ekki um svo mikil störf að ræða, að ekki gæti jafnvel annar bankastjórinn dvalið nokkurn hluta ársins erlendis auðvitað með því, að haga vinnubrögðunum nokkuð á annan veg en nú á sjer stað. Þetta munu allir hafa skilið, nema ef hæstv. ráðherra hefir þurft að misskilja það. Það getur verið, að jeg líti ekki á þetta mál eins og aðrir, en þetta er nú mín skoðun. Og það er ekki víst, að það sje vitlausara, að spyrja um mína skoðun en annara í þessu efni. Mjer gæti vel dottið eins gott í hug um það og einhverjum lögfræðingnum, jafnvel þótt hann hefði orðið ráðherra. Mjer virðist að einn bankastjóri með tveim eftirlitsmönnum, völdum af Alþingi, ætti að nægja.
Hæstv. ráðherra leggur áherslu á það, að fá lögfræðing inn í þessa stöðu, og hyggur víst, að hann muni njóta sín betur, eða verða trúrri, ef hann er stjórnarmaður »með ábyrgð«. Jeg held ekki. Jeg hygg, að ef maðurinn er ekki nógu samviskusamur, til þess að segja rjett til, ef hann er spurður ráða hins, vegar, þá muni hann ekki verða betri, þótt hann sje gjörður að bankastjóra með 6000 kr. launum.
Jeg skal ekki fara að eltast mikið við það, sem hæstv. ráðherra sagði um docentinn. Það var mál, sem hann og fleiri komu af stað hjer á síðasta þingi, og jeg var með því, það játa jeg, til þess að forða landinu við því hneyksli, að hjer væri hvergi unt að fá tilsögn í grísku, sem landið sæi um. Jeg skal ekki fara að halda neinar hrókaræður um það, hve vel eða illa hafi verið valið í þá stöðu, en hins vegar ætti hæstv. ráðherra ekki að efast um það, að raunalausu, að unt sje að fá til hennar einhvern sæmilegan mann, því að hingað til hafa nýir kandídatar óspart verið settir í slíkar stöður, og ekki þótt nein áhætta, og hefir hann ekki ástæðu til að ætla mig heimskari mann en suma þá, er settir hafa verið óreyndir í dýrari stöður.
Jeg segi þetta að þessu sinni, til þess að taka frá honum þá ánægju, að nota þetta vopn gegn mjer oftar. (Ráðherra: Og þetta var nú ekki svo stórt vopn). Nei, og það var gott, að vopnið var ekki lengra, því að þá hefði maðurinn ekki kunnað með það að fara.
Jeg sný ekki aftur með það, að það er ekki rjett, að vera nú að stofna þetta 6000 kr. embætti. Jeg hygg, að áður en þetta þing hefir lokið störfum sínum, muni það fá ýmislegt þarfara til meðferðar, og nefndi jeg þar til málaleitun kennaranna við læknadeild Háskólans. Að því embætti myndi ekki verða landsskaði, því að jeg veit, að launin muni verða fyrir neðan lágmark það, er launalaganefndin leggur til á sínum tíma.
Að því er við kemur þessu dulda brigsli til mín, um það, að af því að þetta sje kennaraembætti, þá fylgi jeg því af eigingjörnum hvötum, þá skal jeg svara því, að þetta og annað eins hefir nú svo oft verið látið klyngja í blöðunum, að það sýnir skort á frumleik, að vera að koma með það nú. Seinast var eitt af aðalhöfðum ráðherraflokksins að reikna það út í blaði hérna á dögunum, hve mikið jeg hefði kostað landið. Þetta eru viðlíka getsakir, og ef jeg hjeldi því fram, að verið væri að stofna stöðu þá, sem hjer er um að ræða, handa fráförnum ráðherra.