12.08.1915
Neðri deild: 31. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1321 í B-deild Alþingistíðinda. (2093)
95. mál, stofnun Landsbanka
Framsögum. minni hl. (Jón Magnússon):
Jeg þarf ekki að tala langt mál, heldur get jeg látið mjer nægja að vísa til nefndarálits minni hlutans.
Eins og tekið hefir verið fram, þá er þetta frumv. mjög líkt og það, sem fram kom frá meiri hl. peningamálanefndarinnar frá 1909, nema hvað þá var gjört ráð fyrir minni launum og minna starfi en nú. Grundvallarreglan er sú sama. Þá var líka gjört ráð fyrir því, að lögfróðs manns þyrfti með í bankastjórnina, og var það fyrirkomulag samþykt hjer í háttv. Nd., en breytt í háttv. Nd.
Það var ekki alveg rjett hjá háttv. framsm. meiri hl. (J. J.), að bæði meiri og minni hl. væru samdóma um það, að ekki þurfi að gjöra ráð fyrir lögfræðingnum. Minni hl. áleit heppilegra, að hafa hann, enda gæti hann vel verið bankafróður maður um leið, því að það er nú altítt, að fjármálamenn sjeu jafnframt lærðir lögfræðingar eða þjóðhagfræðingar, og hafa margir slíkir menn þótt reynast vel. En hitt gat minni hl. að eins gengið inn á, að ástæða gæti verið til þess, að binda sig ekki fastlega við það, að maðurinn skyldi endilega vera lögfræðingur. Í nefndarálitinu er þess getið, að minni hl. álíti betra, að hafa einn mann heilan til bankastjórnarstarfanna en tvo í hjáverkum, og annað geta gæslustjórarnir aldrei orðið. Þeir hljóta alt af að hafa eitthvert annað aðalstarf. Auk þess er það rjett, sem hæstv. ráðherra hefir sagt, að meðan svo er, þá er ætið óvíst hve lengi mönnum kann að haldast á þeim. Það skiftir oft um afstöðu flokka hjer í þinginu, og þá geta einnig orðið skifti á gæslustjórum, þótt svo þurfi ekki endilega að vera. Og ef gagn á að vera að manni í bankastjórn, þá held jeg því fram fyrir mitt leyti, að það verði að vera aðalstarf hans og æfistarf.
Það, sem aðalágreiningurinn er um, er það, að minni hl. vill, að bankastjórarnir sjeu undirgefnir landsstjórninni á sama hátt og allir aðrir, sem taka þátt í framkvæmdarstjórn landsins, því að Landabankinn er ekkert annað en landsstofnun, sem ætlað er að bæta úr viðskiftaþörf landsmanna, um leið og hún á að veita fje í landssjóðinn, alveg eins og aðrir bankar, sem eru tekjugrein fyrir ríki víðs vegar um heim. T. d. vita menn að sænska ríkið hefir stórtekjur af þjóðbankanum þar. Og við höldum (minni hl.), að sú breyting, sem hjer er um að ræða., myndi ekki hafa neinn þann kostnað í för með sjer, sem vert sje um að tala. Mjer er sagt, að gæslustjórarnir kosti nú svo mikið, eins og nú er, að munurinn yrði ekki nema á 3. þús. kr. á ári, og er það ekki mikið.
Jeg var í peningamálanefndinni 1909, og jeg held að þá hafi verið sagt, bæði þar og á þinginu, að ekki lægi á því, að frumv. næði fram að ganga að sinni, og líkt má segja nú, að þótt meiri hl. sje frv. meðmæltur, þá finnur hann ekki ástæðu til að halda því fram, að breytingin komi á nú þegar. Það má eflaust dragast til nánari athugunar.
Í sambandi við þann aðalágreining, sem jeg hefi minst á, vil jeg taka það fram, að minni hlutinn vill, að þingið snúi sjer til landsstjórnarinnar í þessu máli, en ekki Landsbankastjórnarinnar, eins og háttv. meiri hlutinn í raun og veru fer fram á í sinni rökstuddu dagskrá. Það er alveg þýðingarlaus krókur, sem þar er farinn og jafnvel ekki þinglegur að forminu, en að efninu svo óþinglegur, sem frekast má verða. Árið 1909 var ekkert verið að spyrja bankann um það, hvort breyta mætti fyrirkomulaginu. Þá var ekki einu sinni stjórnin um það spurð. Og þegar um það hefir verið að ræða, að breyta um skipulag opinberra sýslana hjer á landi, þá veit jeg ekki til þess, að nauðsynlegt hafi þótt, að spyrja viðkomandi embættismenn til ráða fyrst. Þetta kemur og fram í nefndarálitinu, og er því ekki ástæða til að orðlengja það frekar.
Einu varð jeg sjerstaklega hissa á hjá háttv. framsm. meiri hlutana (J. J.). Hann var að tala um, að háttv. meiri hluti hefði viljað fara svo friðsamlega í sakirnar. Jeg veit ekki hvað þá hefði átt að vera ófriðlegt í fari minni hluta. Mjer er það fullkominn leyndardómur, hvað hann hefir getað átt við með þessu orði. Minni hlutinn hefir einmitt viljað fara mjög gætilega. Jeg skal ekki fara út í það hjer, hver fjármál landsins annara skuli vera rannsökuð. Nefna mætti þó þetta: Landssjóður hefir t. d. tekið ýms lán, sem um gæti verið að tala, að koma saman í eitt, og eins væri, ef landsstjórnin vildi eða þyrfti að koma í verð ytra einhverju af verðbrjefum landsins, þá gæti vel verið heppilegt, að landsstjórnin sjálf sendi mann til þeirra erinda. En eins og menn vita, senda Danir stundum erindreka í slíkum erindum, og sama hygg jeg að sje um fleiri þjóðir, til að mynda Norðmenn. Þess vegna eru tillögur minni hlutans hjer yfirgripsmeiri. En eins og áður hefir sagt verið, þá er margt líkt með skyldum, þar sem meiri og minni hluti eru. Jeg kem hjer líka fram með rökstudda dagskrá, sem jeg vil leyfa mjer að bera fram fyrir hönd minni hlutans, og hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
Í trausti þess, að landsstjórnin rannsaki það, hvert gagn mætti af því verða, að reyndur bankamaður og fjármálamaður yrði fenginn til að athuga peningamál landsins, þar á meðal skipulag Landsbankans og gjöra tillögur um endurbætur á því, ef þurfa þykir, svo og á hvern hátt verði útvegaður markaður fyrir íslensk verðbrjef í og bankanum komið í viðskiftasamband við erlendar peningastofnanir og enn fremur, að landsstjórnin gjöri þær ráðstafanir í þessu efni, er hún telur þörf á, og leggi fyrir næsta Alþingi tillögur sínar, tekur deildin fyrir næsta mál á dagakrá.