12.08.1915
Neðri deild: 31. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1342 í B-deild Alþingistíðinda. (2100)

95. mál, stofnun Landsbanka

Framsm. minni hl. (Jón Magnússon):

Hæstv. ráðherra hefir tekið ýmislegt af því fram, sem þurfti að svara, t. d. orðum l. þingm. G.-K. (B. K.) um það, að pólitísk afskifti stjórnarinnar af bankanum gætu verið hættuleg. Því er nú svo varið, að ekki verður hjá því komist, þar sem þingræði er, að þar er stjórnin meira og minna háð meiri hluta þings, og það getur komið fyrir, að pólitík ráði nokkru stundum um afskifti stjórnarinnar af embættum og embættismönnum. Þessu verða bankastjórarnir að sæta, sem allir aðrir embættis- og sýslunarmenn landsins. Vissulega hefir þetta fyrirkomulag sömu kosti og galla gagnvart bankanum og öðrum stofnunum. Það er því ekki annað en hjegilja, að vera að tala um þennan háska, sem nokkuð sjerstakt fyrir bankann. En þangað til sönnur eru á það færðar, verð jeg að mótmæla því, að þetta fyrirkomulag sje sjerstaklega óheppilegt fyrir bankana.

Jeg er samdóma hæstv. ráðherra um það, að það sje rangt hjá háttv. þingm. G.-K. (B. K.), að gæslustjórarnir eigi að sitja í framkvæmdarstjórn bankans. Samkvæmt reglugjörðinni eru þeir til aðstoðar og eftirlita. Stjórninni er skift í framkvæmdarstjórn og eftirlitsstjórn, og er auðsætt að gæslustjórarnir eiga heima í eftirlitsstjórninni. Þess vegna var það líka rjett hjá háttv. þingm. (B. K.), þegar hann líkti gæslustjórunum við bankaráð.

Háttv. þingm. (B. B.) taldi það rangt í nefndaráliti minni hlutans, að starfsfje bankans hefði verið aukið 1913, því að hann hefði fengið starfsfjeð áður. Þetta er stakasti misskilningur hjá hv. þingm. (B. K.). Ef jeg á t. d. skuld, 10 þús. krónur, sem afborgast eiga árlega með jöfnum afborgunum á 10 árum, en mjer eru í 10 ár gefnar 1000 kr. árlega, eykst þá ekki fje mitt um 10000 kr. á 10 árum?

Þá talaði háttv. þingm. (B. K.) um það, hversu óheppilegt það væri, að bankastjórnin rjeði ekki skipun fjehirðis og bókara bankans. Jeg fyrir mitt leyti fæ nú ekki sjeð, hvers vegna samvinnan ætti að ganga verr, þótt þessir starfsmenn væru allir skipaðir af sama valdi, og það ætti háttv. þm. (B. K.) að vita, að um ýmsar aðrar stofnanir landsins gildir þessi regla, svo sem um póstmenn og símamenn. Jeg fæ ekki sjeð, að sjerstakar ástæður sjeu til þess, að víkja frá þeirri reglu, að því er þessa einu stofnun snertir. Það er þá einhverri sjerstakri óhepni að kenna, ef ólag er á þessu í bankanum.

Hv. 1. þm. Húnv. (G. H.) talaði um það; að nauðsynlegt væri, að taka Íslandsbanka líka til athugunar í þessu efni, og sje jeg ekkert á móti því. Annars sje jeg ekki ástæðu til mikilla málalenginga að sinni; væntanlega koma peningamál landsins til umræðu siðar á þessu þingi, og gefst þá tækifæri til þess, að taka þessar umræður upp af nýju. Jeg vænti þess, að hin rökstudda dagskrá minni hlutans verði samþykt, vegna þess, að hún er víðtækari en hin og gæti komið að meiru gagni, ef hún yrði tekin til greina.