03.09.1915
Neðri deild: 50. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1353 í B-deild Alþingistíðinda. (2111)
139. mál, fjölgun ráðherra
Frsm. (Hannes Hafstein):
Eins og kunnugt er orðið af nefndarálitinu á þgskj. 679, hefir nefndin komist að þeirri niðurstöðu, að þótt æskilegt sje, að ráðherrum verði fjölgað í náinni framtíð, þá telur hún þó heppilegt, að fjölgunin komi ekki til framkvæmdar á þessu þingi, heldur verði frestað að ákveða nokkuð um það, þangað til kosningar hafi farið fram. Jeg þarf ekki að endurtaka nú ástæður nefndarinnar fyrir þessari niðurstöðu. Í því efni get jeg skírskotað til nefndarálitsins.
Að eins skal jeg geta þess, að nefndin leit svo á, að á þessum tímum hlyti vandamesta starf stjórnarinnar að lúta að dýrtíðar- og stríðshætturáðstöfunum, og aukning á störfum hennar stæði nú í bráðina aðallega í sambandi við það, en önnur þjóðþrifastörf, er nýja starfskrafta útheimtir af landsstjórnar hálfu, yrðu að bíða betra tíma. En nú hefir þingið sjeð stjórninni fyrir hjálp í því efni, með því að skipa;hina svo kölluðu »Velferðarnefnd« við hlið stjórnarinnar, henni til aðstoðar til næsta þinga, áþekt því eins og fleiri ráðherrar sætu á rökstólum saman. Nauðsynin á fjölgun ráðherra er því ekki jafn mikil eins og ella mundi verið hafa.
Jeg skal svo ekki fjölyrða frekar um þetta mál, en einungis geta þess, að jeg get ekki greitt brtt. á þgskj. 723 atkv., því jeg lít svo á, að í henni felist mótmæli gegn því, að ráðherrum verði fjölgað, en slíkt var alls ekki tilgangur nefndarinnar; meiri hluti hennar hefir orðið ásáttur um tillögu til rökstuddrar dagskrár, og leyfi jeg mjer að leggja það til, að hin háttv. þingdeild samþykki hana. Dagskráin er svo hljóðandi :
Í því trausti, að stjórn og kjósendur athugi nánar til næsta þings, hvort ekki sje rjett að ráðherrar verði 3, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.