03.09.1915
Neðri deild: 50. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1354 í B-deild Alþingistíðinda. (2113)

139. mál, fjölgun ráðherra

Sigurður Eggerz:

Jeg á brtt. á þgskj. 723. Jeg leit svo á, að ef deildin vildi samþykkja eitthvað í þessu máli, þá væri rjettara að hafa það þannig, að deildin væri samt sem áður »neutral« í málinu, þ. e. a. s., að hún ljeti ekki að nokkru uppi álit sitt um það, hvort rjett væri að fjölga ráðherrum eða ekki.