30.07.1915
Neðri deild: 20. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1399 í B-deild Alþingistíðinda. (2165)

42. mál, Möðruvellir í Hörgárdal

Magnús Kristjánsson :

Það er algjörlega þýðingarlaust, að fjölyrða nokkuð um þetta. Landbúnaðarnefndin virðist hafa tekið þá stefnu, að sálga flestu því, er til hennar kemur, og svo mun eiga að fara um þetta mál. Mjer finst kynlegt, að nefndarálitið skuli vera algjörlega órökstutt. Það hefði óneitanlega farið betur á því, að nefndin hefði reynt að færa einhver rök fyrir sínu máli, heldur en að koma með lagatilvitnanir, sem engri átt ná, og sanna einmitt það gagnstæða því, sem til var ætlast. Þessi tilvitnun í 2. gr. þjóðjarðasölulaganna sýnir, að háttv. nefnd hefir ekki lesið þau lög, því þar er einmitt gjört ráð fyrir þeirri aðferð, sem hjer hefir verið við höfð. Mjer þykir reyndar ekki ólíklegt, að atkvæðagreiðsla fari nokkuð eftir því, hvernig fer um frumvarpið um frestun framkvæmda á sölu þjóðjarða, sem hjer liggur fyrir.

Jeg fer svo ekki fleiri orðum um þetta í bráð.