31.07.1915
Neðri deild: 21. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1419 í B-deild Alþingistíðinda. (2198)
54. mál, póstsparisjóðir
Framsm. (Guðm. Hannesson):
Jeg get verið fáorður um þetta frumv. Meiri hl. nefnarinnar telur æskilegt, að póstsparisjóðir komist á í sveitum, sem erfitt eiga með að ná til annara sparisjóða. Póstsparisjóðir eru víða um lönd, og reynast ágætlega. Jeg hygg, að póstsparisjóðir hafi tvo galla í margra manna augum. Vextirnir eru litlir, því kostnaður legst á geymslu og flutning fjárins, og hitt, að fjeð flytst á einn stað, úr hjeruðum og til landsstjórnarinnar hjer til Reykjavíkur, og þá um leið frá sveitunum eða einstöku hreppum.
Þetta hefir nefndinni þótt annmarki, og hefir verið sammála um, að það væri sanngjörn krafa, þar sem bankafyrirkomulag er ekki því betra, að fje hreppanna dragist ekki frá þeim á einn stað í landinu. Gjörðum við því brtt. á þgskj.114 við 2. gr. frv., og bundum stofnun póstsparisjóðs því skilyrði, að hlutaðeigandi hreppsnefnd mælti með henni. Víða í landinu er erfitt að ná til sparisjóðs; þar væri því gott að koma á póstsparisjóðum til viðbótar við hjeraðssparisjóði vora.
Hin aðalbreytingartillagan er auðskilin. Nefndinni þótti — og hafði enda heyrt það á öðrum líka — 15 ára fresturinn vera alt of stuttur, og hefir því lagt það til, að 50 ár verði látin líða, áður innstæðufje hverfi til sjóðsins, þá er eigendur gefa sig ekki fram.
Um sjálft frumvarpið er lítið annað að segja en að það er samið af Sigurði Briem póstmeistara, og fylgir því brjef hans til stjórnarráðsins með skýringum á frumvarpinu. Nefndin hefir farið yfir það grein fyrir grein, og ekki fundið annað athugavert við það en nú var talið, og væntir því, að háttv. deild muni fallast á það.