09.08.1915
Neðri deild: 28. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1438 í B-deild Alþingistíðinda. (2218)

54. mál, póstsparisjóðir

Benedikt Sveinsson:

Jeg gat þess við 2. umr. þessa máls, að jeg myndi koma fram með brtt. til 3. umr. Jeg hætti þó við að koma með ýmsar brtt., sem jeg hafði ætlað mjer að gjöra, og ljet við lenda, að bera fram tvær brtt., sem prentaðar eru á þgskj. 268.

Fyrri brtt. er við 8. gr., um að lengdur verði frestur sá, sem póststjórnin hefir til að lækka lækka vexti, að í stað tveggja mánaða komi þrír mánuðir: Jeg færði rök fyrir því við 2. umr., að þessi frestur væri of stuttur, því að ef tilkynning um vaxtalækkun kæmi út rjett eftir að póstur færi frá Reykjavík, yrðu eigendur að innlögum ekki búnir að fá vitneskju um það, fyrr en eftir tvo mánuði. Jeg hygg því, að háttv. deild fallist á, að þessi breyting sje til bóta.

Hin brtt. er við 9. gr., viðvíkjandi uppsagnarfrestinum: Mjer þótti þessi uppsagnarfrestur nokkuð langur, einkanlega fyrir Reykjavík. Brtt. fer í þá átt, að ekki þurfi neinn uppsagnarfrest hjer á staðnum. Sumir eru nú ef til vill hræddir um, ef ótti kæmi upp, að menn hefðu ekki hemil á sjer og kynnu að rífa út alt fjeð í einni svipan, svo að póstsparistjóðurinn yrði ráðþrota. En hjer stendur öðru vísi á en í almennum sparisjóðum, því að fyrst og fremst er hámark inneignar í hverri viðskiftabók að eins 2000 kr., og annað það; að hjer er ekki um valta stofnun að ræða, þar sem sjálfur landssjóður hefir ábyrgð á öllu fjenu. Þegar þetta hvort tveggja helst í hendur, hygg jeg að engin hætta geti verið á því, að skelkur komi mönnum til að rífa fje sitt út, enda mætti þá finna einhver ráð til bráðabirgða, ef til kæmi að á því þyrfti að halda, en það getur ekki komið fyrir. Jeg hygg, að það yrði einungis til að auka trafala og óþarfa akriftir, að vera að hafa þessa fresti fremur vi3 þessa sparisjóði heldur en aðra, þegar um litlar upphæðir er að ræða. Jeg býst því við, að menn kannist við, að þessi brtt. sje til bóta og algjörlega hættulaus.

Jeg hafði hugsað mjer að koma líka með brtt. út af sparimerkjunum. Eins og jeg sagði við 2. umr., myndi verða miklu betra og umsvifaminna að nota frímerki heldur en sparimerki. Fyrst og fremst myndi tilbúningur þeirra kosta talavert og svo myndi þurfa að gjöra sjerstaka skilagrein fyrir þessum merkjum, sem aldrei myndu þó seljast nema að mjög litlu leyti. Hitt fyrirkomulagið, að lofa mönnum að kaupa frímerki og nota þau eins og sparimerki, er svo miklu umsvifaminna, að á þessu tvennu er enginn samanburður. En sá hængur er þó á, að til þess að þetta gæti orðið, yrði að breyta póstlögunum lítilsháttar, því að þar er svo ákveðið, að þeir, sem kaupa frímerki í heilum örkum, fái afslátt af verði þeirra. Þennan afslátt, sem nemur 4%, þyrfti að afnema. Jeg gat ekki komið fram með með frumv. þess efnis, og sparisjóðanefndin hefir ekki heldur gjört það. Það er þó athugavert við þessa breytingu, að hún myndi hafa í för með sjer dálitla lækkun á tekjum póstmanna í landinu. Að vísu fá þeir ekki hundraðagjald af þeim frímerkjum, sem þeir láta af hendi í heilum örkum, en 4% af því, sem þeir selja í lausasölu. Ef gjöra má ráð fyrir að það nemi 150,000 kr. á ári, sem selt er á öllu landinu, þá yrði hundraðsgjaldið 6000 kr., sem yrði beinn gróði landssjóðs, ef þessu gjaldi væri slept.

Sanngjarnt væri má ske að fara bil beggja og lækka þetta gjald um helming eða niður í 2%, og láta póstmenn hafa það af öllu því, sem þeir seldu, en kaupendur ekkert. Væri ef til vill rjettara, að haga því þannig, til þess að póstmenn mistu einskis af þeim hlunnindum, sem þeir hafa. Þá mætti einnig nota frímerkin sem sparimerki. Jeg bendi að eins á þetta, en býst tæplega við, að hægt sje að laga það hjeðan af á þessu þingi. Jeg er ekki flutningsmaður þessa frv., heldur hefir sparisjóðanefndin borið það fram.

Það er undarlegt, að háttv. framsm. nefndarinnar (G. H.) sækir nú fast fram á móti þessu frumv., sem hann hefir sjálfur verið með í að flytja inn á þingið. Aðalástæða hans er sú, að póstsparisjóðirnir muni verða keppinautar sparisjóða út um land og draga fje þeirra til Reykjavíkur. Þessi ótti hefir komið fram hjá honum og háttv. þm. Ak. (M. K.), að sparisjóðir hjeraðanna muni þverra að sama skapi og menn leggja fje inn í póstsparisjóð. Eftir því, sem mjer hefir skilist, hafa flutningsmennirnir þó ekki óttast þetta. Háttv. frsm. (G. H.) gat þess, að nefndin hefði. ekki viljað setja neitt lágmark vaxta, en bjóst við að þeir mundu verða hjer um bil 2–3%, eða með öðrum orðum mun lægri en hjá öðrum sparisjóðum. Jeg býst við, að þá geti naumast verið um neina samkepni að ræða, nema þar sem svo stæði á, að sparisjóður væri svo illa ræmdur, að menn væru hræddir um fje sitt í honum, og vildu heldur leggja fje sitt inn þar, sem það væri trygt, þótt vextirnir væru nokkru lægri. Jeg get nú búist við, að póststjórnin sjái sjer fært að hafa vextina eitthvað hærri en þetta, þó þeir yrðu lægri en í öðrum sparisjóðum, til þess að þeir stæðu betur að vígi. Það er alveg sjerstakt verkefni, sem þessum póstsparisjóðum er ætlað að inna af hendi. Þeir eiga að taka við því fje, sem menn vilja heldur eiga trygt í vörslum landastjórnarinnar heldur en annarstaðar og hægra er að koma af sjer í póstsparisjóði heldur en í hina. Í sumum sveitum eru engir sparisjóðir til, og getur það, hvað erfitt er að ná til sparisjóða, oft og tíðum orðið til þess, að menn leggi ekki inn smáupphæðir, sem svo verða að eyðslufje. Í öðru lagi hafa fæstir sparisjóðir opna afgreiðslu nema 1–2 stundir á viku, en póstsparisjóðirnir eiga að vera opnir allan daginn. Þetta er einhver helsti kosturinn við slíka sjóði.

Það er alveg rjett, sem hv. frsm. (G. H.) tók fram, að í Þýskulandi eru póstsparisjóðir ekki komnir í framkvæmd, vegna þess, að þeir þóttu koma í bág við hagsmuni annara sparisjóða. Rjettara hefði þó verið að segja, að þeir hafi þótt koma í bág við hagsmuni starfsmanna sparisjóðanna, því að eins og nærri má geta, eru sparisjóðir svo að segja á hverju strái í jafnþroskuðu menningarlandi, og mesti fjöldi manna hefir atvinnu við þá. Það er ekkert undarlegt, þótt mönnum hafi þótt athugavert að svifta allan þann fjölda manna atvinnu sinni og því hikað við, að setja póstsparisjóði á stofn þar í landi. Þannig var það líka í Noregi og Danmörku, að póstsparisjóðir mættu helst andróðri þeirra manna, sem störfuðu við sparisjóði. En hvarvetna þar, sem póstsparisjóðir hafa komist á, er það almennt álitið, að þeir auki sparifje manna, það er að segja, að menn hafa lagt miklu meira fje til geymslu en annars. Hinn geysilegi þroski, sem þeir hafa náð í Ameríku, sýnir ljóslega, að þeir hafa áunnið sjer traust manna og eru alment álitnir koma að góðu gagni. Jeg býst ekki við, að þeir orki hjer neinni stórbyltingu á peningamarkaðinn, hvorki að þeir steypi sparisjóðunum nje að ógrynni fjár safnist saman á einum stað. En hitt dylst mjer ekki, að þeir myndu auka sparnað í landinu, auk þess sem mönnum yrði hægara aðstöðu, að skifta við þá og þeir yrðu tryggari en kostur er á um aðra sjóði. Jeg gjöri annars ráð fyrir, að einhverjum hjer í deildinni sje skyldara en mjer, að taka þetta mál undir sinn verndarvæng og læt því úttalað að þessu sinni.