31.07.1915
Neðri deild: 21. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1446 í B-deild Alþingistíðinda. (2226)
66. mál, Skarfsstaðir í Hvammssveit
Flutningsm. (Bjarni Jónason):
Jeg skal lýsa yfir því, að jeg hefi ekkert á móti því, að málinu verði vísað til landbúnaðarnefndarinnar.
En viðvíkjandi því, hvert traust jeg beri til hæstv. ráðherra í þessu máli, þá er það fljótsagt, að jeg er alls ókvíðinn. Því þó að okkur hafi ekki samið í einu stórmáli hjer á þinginu, þá ber jeg þó fult traust til hans, að hann sjái ekki ástæðu til þess, að neita sölu á jörðinni, þar sem lögð eru fram skýr og skilmerkileg gögn um það, að slíkt komi ekki í bág við lögin um sölu þjóðjarða. Jeg hefi og því fremur þá von, að stjórnin veiti leyfi til sölunnar, sem sýslunefnd hefir lagt gott til með manninum, og þar sem þingmálafundur einnig hefir skorað á stjórnina að selja jörðina og láta manninn þannig ná skýlausum rjetti sínum.