02.08.1915
Neðri deild: 22. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1456 í B-deild Alþingistíðinda. (2241)

69. mál, hagnýt sálarfræði

Flutnm. (Matthías Ólafsson):

Það er ekki nýstárlegt, að stofnað sje embætti við Háskóla Íslands, en sú fræðigrein, sem stofna á embættið í, er nýstárleg. Þessi vísindagrein er ekki alment kunn og ekki nægilega lesin.

Jeg er með þessu frumvarpi af því, að því meira, sem jeg hefi kynt mjer þetta mál, því sannfærðari hefi jeg orðið um það, að nýtur kennari í vísindagrein þessari gæti orðið að virkilegu gagni. í 2. gr. frumv. stendur, að kennarinn skuli hafa á hendi vísindalegar tilraunir til að bæta vinnubrögð í landinu.

Það er engum vafa bundið, að brýn þörf er á því, að bæta vinnubrögðin hjá þjóðinni, kenna henni að vinna sjer haganlegar en á sjer stað. Að vísu er það óráðin gáta, hvort það tekst, en það er auðráðin gáta, að brýn þörf er á umbótum í þessu efni. Sá maður, sem sótt hefir um embætti þetta, ef það verður stofnað, er alþektur að áhuga, við hvað sem hann fæst, og sjerstaklega hefir hann kynt sjer rækilega þá vísindagrein, sem hjer ræðir um. Það er því óefað, að meðan hans nyti við, má búast við miklum og góðum árangri. Við flutningsmenn frumvarpsins erum ekki einir um þetta, því hjer eru fyrir hendi meðmæli frá málsmetandi mönnum og fjelagi, landsbúnaðarfjelaginu. Þá eru meðmæli fyrst og fremst frá heimspekisdeild Háskólans, auk þess hefir landsverkfræðingurinn, Jón Þorláksson, gefið sín bestu meðmæli, og síðast er það, að Búnaðarþingið mælti með þessu og taldi stofnun embættis í þessari grein einkar heppilega.

Það er alkunna, að menn, sem komnir eru á fullorðins ár, vinna sjer jafnvel þau verk, er þeir hafa iðkað frá blauta barnsbeini, t. d. slátt og róður, miklu erfiðlegar en þörf er á, eyða of mikilli orku til þeirra. Jeg efast nú ekki um það, að ráða megi mikla bót á þessu. Raunar eru að sjálfsögðu undantekningar frá því, að menn vinni sjer dagleg og algeng störf svona erfitt, en fjöldinn þreytir sig áreiðanlega ofmikið.

Jeg álít það þýðingarlaust, að halda langa ræðu um þetta mál, enda vona jeg, að jeg hafi fært líkur fyrir því, að þetta geti orðið að gagni. Jeg vil svo óska þess, að háttv. deild taki þetta mál til rækilegrar íhugunar, taki því með gætni, og felli það ekki þótt það sje nýstárlegt, en athugi, hvort ekki sje verið að bæta hjer úr gömlu ólagi, og láti ekki ótta fyrir kjósendum eða flokksfylgi hafa áhrif á sig. Jeg tek þetta fram af því, að margir þingmenn munu hafa áskoranir frá kjósendum sínum um það, að sporna á móti því, að stofnuð verði óþarfa embætti. En þó svo sje, þá er það synd, að stofna ekki embætti, sem að gagni mætti koma.

Jeg vil óska þess, að málinu sje, að umræðunni lokinni, vísað til nefndar um stofnun kennaraembætta við Háskóla Íslands.