02.08.1915
Neðri deild: 22. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1457 í B-deild Alþingistíðinda. (2242)

69. mál, hagnýt sálarfræði

Sigurður Sigurðsson:

Það er alllangt síðan að jeg heyrði ávæning af því, að þetta mál ætti að koma hjer fram í þinginu í einhverri mynd. Þó bjóst jeg ekki við því, að hjer myndi lagt til, að stofnað yrði nýtt embætti við Háskólann í vinnuvísindum eða hagnýtri sálarfræði, eins og það er kallað. Þar sem nú málið er hjer til 1. umr., þá ætla jeg að eins að fara nokkrum orðum um það frá mínu sjónarmiði.

Jeg tók eftir því, að háttv. þm. Dal. (B. J.) bað undir eins um orðið á eftir mjer. Hann býst víst við andmælum frá minni hálfu gegn þessu frumvarpi, og má vel vera, að hann gruni það rjett.

Þegar litið er til Háskólans, þá er hann ekki orðinn gamall, en þó hefir það komið í ljós, að hann gjörist dýrari með ári hverju. Við Háskólann eru nú 9 pófessorar og 3 dócentar, að meðtöldum háttv. þingmanni Dalamanna (B. J.). Laun þeirra eru um 40,000 á ári. Fjárhagstímabilið 1912–1913 námu fjárveitingar til Háskólans um 51,000 króna hvort árið. Á yfirstandandi fjárhagstímabili renna til hans um 65,000 kr. hvort árið til jafnaðar. Og í fjárlagafrumv., sem nú liggur fyrir, eru áætluð gjöld til Háskólans um 70,000 kr. á ári.

Kostnaðurinn fer þannig sívaxandi. Um þetta er kann ske ekki mikið að segja. Háskólinn er talinn óskabarn þjóðarinnar, og vil jeg ekki draga úr því. En þó að hjer sje nú kominn á Háskóli, þá verða þó fjárveitingar til hans að hafa einhver takmörk, og þá um leið stofnun nýrra kennaraembætta við hann. Við erum fáir, fátækir og smáir og þolum því ekki útgjöld, sem unt er að komast hjá. Þetta er ein hliðin á þessu máli.

Á síðasta þingi var stofnað nýtt embætti við Háskólann, og nú er í ráði að stofna tvö ný í viðbót. Og hver veit hvað þau verða mörg á endanum, ef þessu verður haldið áfram? Að vísu skiftir það miklu, hvert embættið er, og hefði verið að ræða um stofnun þessa embættis í fyrra, er stofnun dócentsembættis í grískum og latneskum fræðum var hjer á prjónunum, þá hefði verið sanni nær, að sleppa því, en láta þetta, sem hjer ræðir um, sitja í fyrirrúmi.

Ef frumv. þetta nær fram að ganga, á það að miða að því, að bæta úr því, hvað menn kunna lítið til allrar vinnu hjer. Mjer er nú óljóst, hvernig stofnun þessa embættis á að geta bætt úr því. Jeg hjelt, að vegurinn til að bæta úr þessu ástandi væri ekki sá, að stofna nýtt embætti við Háskólann. Eftir frumvarpinu að dæma, eru það nemendurnir við Háskólann, sem njóta eiga kenslunnar. Jeg efast raunar ekki um, að þeir hefðu gott af því að fá verklega kenslu í algengum vinnubrögðum. En það er nú, því miður, ekki algengt, að embættismenn, að fáum undanteknum, stundi algenga vinnu, svo sem slátt eða önnur heimilisstörf. Virðist mjer því, að frumv., eða stofnun þessa kennaraembættis nái naumast þeim tilgangi, að bæta úr verklegri vankunnáttu manna, alment.

Hinu neita jeg ekki, að vinnulýð þessa lands er nauðsynlegt að kunna betur til verka en alment á sjer stað. En hvort þetta er leiðin til þess, er annað mál; jeg efast um það.

Jeg held, satt að segja, að háttvirtur flutnm. (M. Ó.) hefði getað fundið einhverja aðra praktiskari leið til þess, að kenna mönnum vinnubrögð, en þá, að stofna nýtt prófessorsembætti við Háskólann. Ef það er aðalatriðið í þessu máli, að koma sjer niður á því, að bæta úr verklegri vankunnáttu manna, með einhverri kenslu, þá get jeg verið með því, að nefnd sje skipuð í málið, en vænti þó naumast, að hún komist þar að nokkurri gagnlegri niðurstöðu.