02.08.1915
Neðri deild: 22. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1477 í B-deild Alþingistíðinda. (2245)

69. mál, hagnýt sálarfræði

Flutnm. (Matthías Ólafsson):

Jeg þarf að svara ræðu háttv. 2. þingm. S.-Múl. (G. E.) nokkrum orðum, enda þótt meiri hluti þess, sem hann sagði, geti varla talist svara verður. Hann sagði, að jeg hefði ekki fært neinar líkur fyrir því, að þetta verk, sem prófessornum er ætlað að vinna, væri framkvæmanlegt. Ef menn vilja breiða þekkingu út um landið, verða menn að byrja á því að kenna einhverstaðar. Ef þetta embætti hefði verið stofnað fyrir 30 árum, áður en háttv. 2. þingm. S.-Múl. (G. E.) gekk í skóla, þá hefðum við líklega losnað við að heyra þessa ræðu hans. Þá hefði hann ef til vill kunnað að þegja. Annars sýndi þessi ræða hans, að hann hefir verið óheppinn með bækur, eða ekki kunnað að notfæra sjer þær bækur, sem hann hefir lesið. Hann gjörði ráð fyrir, að allir þeir, sem eitthvað eiga að læra hjá þessum prófessor, þurfi endilega að vera inni í Háskólanum. En þess ber að gæta, að fyrst og fremst er honum ætlað að kenna í skólanum, og síðan að leiðbeina mönnum við vinnu, ef óskað er, og þá auðvitað þar, sem vinnan fer fram. Þetta ætlaði jeg háttv. 2. þingm. S.-Múl. (G. E.) að skilja, jafnvel þótt jeg vissi, að hann er ekki neitt sjerstaklega skarpskygn. Hann var að leitast við að gjöra málefnið hlægilegt, og oft leit hann upp á pallana, til þess að vita hvernig áheyrendunum geðjaðist að hnittiyrðum hans og skopi. En ef hann hefði getað sjeð inn í hugskot manna, þá mundi hann líka hafa sjeð, á hvers kostnað hlegið var hjer í salnum. Fyrr á tímum hjeldu konungar og stórhöfðingjar menn, til að hafa á hendi þann starfa, sem hv. 2. þm. S.-Múl. (G. E.) hefir tekið að sjer hjer í deildinni, en þingið hefir ekki ráð til að halda slíkan mann nú í þessari dýrtíð.

Hann var að lesa kafla upp úr bókinni »Vit og strit«, og reyndi eftir mætti að draga dár að þeim. Ef honum er gjarnt til höfuðverks, væri rjettara fyrir hann, að reyna að komast hjá slíkri áreynslu. Bókin er jafngóð fyrir því, þótt reynt sje, af meira striti en viti, að snúa út úr því, sem í henni stendur. Maður vill hafa rannsókn um þetta efni og gjöra þá rannsókn ávaxtasama, með því að gefa mönnum leiðbeiningar við vinnu. Landsverkfræðingurinn hefir látið uppi það álit sitt, að slíkar tilraunir mundu verða allri verkstjórn til verulegra bóta. Jeg hefi trú á því, að í þessu sje mikill sannleikur, auk þess, sem jeg hefi besta traust á manninum sjálfum, sem ætlað er að inna þetta verk af hendi. Hann hefir frá blauta barnsbeini vanist ýmsum störfum, og það er alkunna, að hann er áhugasamur dugnaðarmaður, sem ekki liggur á liði sínu. Það ætti því ekki að vera mjög hættulegt, að stofna þetta embætti, og ætíð hægurinn hjá fyrir þingið að afnema það aftur, ef það reyndist ekki gagnlegt. Hvað snertir útlitið fjárhagslega, verð jeg að segja, að á hinum erfiðu tímum dugar ekki að gugna, heldur er þá fremur ástæða til, að reyna að finna ný ráð. Og nú er ef til vill einmitt tími til að gjöra einhverjar tilraunir í þessa átt, því að ekki er ráð, þegar hart er í ári og illa lítur út, að leggja árar í bát.

Jeg get slept því fram hjá mjer, að svara gemsyrðum háttv. 2. þingm. S.- Múl. (G. E.) um, að með þessu eigi að koma í veg fyrir, að menn þreytist við erfiðisvinnu. Það er vitaskuld ekki hægt, að koma því svo fyrir, að menn þreytist ekki, en það er hægt að gjöra mönnum vinnuna ljettari, og það er ekki lítis virði.

Jeg sje svo ekki ástæðu til, að vera að mótmæla fleiru í ræðu háttv. þingm. (G. E.), nema þeirri uppástungu hans, að vísa málinu til landbúnaðarnefndar. Ef það er álitið nauðsynlegt, að málið sje sett í nefnd, þá er sjálfsagt, að vísa því til háskólanefndarinnar. Háttv. þingm. (G. E.) kom með orð eftir einhverjum í háskólaráðinu, sem betur hefðu verið ótöluð. Jeg vil spyrja, hvort jeg hafi ekki leyfi til, að koma fram með þetta frumv., án þess að ráðfæra mig við háskólaráðið. Jeg er þess fullviss, að þótt jeg hefði borið það undir háskólaráðið, þá hefði að minsta kosti meiri hluti þess verið með því.