23.08.1915
Neðri deild: 40. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1489 í B-deild Alþingistíðinda. (2250)
69. mál, hagnýt sálarfræði
Framsögumaður (Guðmundur Hannesson):
Ekkert skal jeg fullyrða um það, hvort háttv. 2. þm. S.-Múl. (G. E.) gjörir sig svo heimskan eða grannvitran, sem ræða hans ber vott um, eða hann er svo gjörður af náttúrunni. Hvorttveggja er sorglegt fyrir þingmanninn, en tertium non datur.
Nefndarálitið segir kost og löst á málinu. Jeg veit vel, að það er ekki málflutningsmanna siður; þeir flytja mál sín venjulega einhliða. Jeg tel það best sæma þingnefndum, að segja kost og löst á hverju máli, skýra sem sannast frá því, og heldur vil jeg hafa ámæli fyrir það, að fleiri skoðana sje getið í álitinu en einnar, heldur en að skýra rangt frá málinu eða villandi, með því að fegra um of aðra hliðina. Fátt er það, sem enginn galli fylgir, og þá er að velja á milli og vega, hvort meiri sjeu kostir en lestir.
Jeg held, að háttv. 2. þm. S.-Múl. (G. E.) hafi lesið nefndarálitið á sama hátt, sem skrattinn biblíuna, og ef það er ekki ljóst, þá var ræða hans það þaðan af síður og fjærri því að skýra málið. Háttv. þingm. segir, að nefndin álíti ekki þörf á því, að hafa tvö embætti í heimspeki við Háskólann, og leggi því til þessarar fjárveitingar í fjárlögum. Já, nefndin segir þetta, og leggur því til, að fella frumvarpið, en af öðrum ástæðum vill hún veita styrk í fjárlögunum. Hjer er um enga mótsögn að ræða.
Þá á það að vera hneyksli, að nefndin segir, að vinnuleikni hafi verið komin á hátt stig, áður en vinnuvísindin komu til sögunnar. Þetta er einfaldur sannleikur, en þar með er ekki útilokað, að þau vísindi geti komið að gagni, aukið vinnuleikni fram úr því, sem orðið er, og útbreitt hana enn meir. Og það er svo gott að vita, að einmitt Krupp er ágætt dæmi þess, er vísindin eru tekin í þjónustu vinnubragðanna. Þar er alt, smátt og stórt, undir hendi vísindamannanna, enda er Essen fyrirmyndarbær í hvívetna. Það dæmi ætti því að mæla með vinnuvísindum.
Mjer dettur ekki í hug að neita því, að vel geti orðið árangur af þessum rannsóknum í ýmsum greinum. Mjer var sagt það fyrir nokkru, að í sumar hefðu vegagjörðarmenn tekið að sjer að leggja vegarspotta upp á »akkorð«. Afleiðingin varð sú, að bæði gekk verkið fljótar og verkamenn fengu hærra kaup en þeir höfðu áður fengið. Ekki væri það ólíklegt, að rannsóknir á vinnubrögðum flýttu t. d. fyrir því, að kaup yrði síðar miðað við verkið, sem af hendi er leyst, en ekki vinnutímann, þar sem því verður á annað borð komið við. Þetta eitt gæti leitt til talsverðra endurbóta og fjársparnaðar.
Það hneykslaði háttv. þm. S.-Múl. (G. E.), að engar aðrar þjóðir hefðu stofnað embætti, til þess að rannsaka vinnubrögð manna, en við ætluðum að taka upp á því fyrstir manna. Þetta er hinn mesti misskilningur. Hefir ekki þingm. lesið nefndarálitið? Og veit hann ekki, að nefndinni er einmitt umhugað um, að stofna ekki sjerstakt embætti í þessu skyni, og vill því láta fella frumvarpið. Jeg skil ekki, að neitt ósamræmi geti verið í því, að nefndin sjer lítil líkindi til þess, í sumum greinum, að þessar rannsóknir komi að notum. Aftur telur hún líkindi til þess, að gagn geti hlotist af þessum rannsóknum í ýmsum öðrum greinum, og því vill hún til reynslu veita manninum styrk í fjárlögunum, en ekki stofna sjerstakt embætti við Háskólann.
Þar sem háttv. 2. þm. S.-Múl. (G. E.) talaði um, að þessi maður ætti að kenna öll verk út um alt land, þá er slíkt auðvitað ekki annað en fjarstæða, sem ekki er svara verð. Engum hefir komið til hugar að haga starfinu þannig.
Háttv. þingmaðurinn kvaðst mundu greiða atkvæði á móti dagskránni. Mig grunar nú samt mikillega, að hann muni greiða atkvæði með henni. Því hann tekur ekki nærri sjer að greiða atkvæði með því, sem hann talar á móti. (Guðmundur Eggerz: Hve nær hefir það komið fyrir?). Til dæmis við fjárlagaumræðuna á laugardaginn. Þá talaði hann á móti Jökulsárbrúnni, en greiddi atkvæði með henni.