24.08.1915
Neðri deild: 41. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1517 í B-deild Alþingistíðinda. (2265)

74. mál, skipun prestakalla

Framsögum. minni hl. (Stefán Stefánsson):

Við 1. umræðu þessa máls þóttist jeg taka fram flest þau rök, er jeg áleit mestu máli skifta fyrir frv. á þgskj. 165, sem jeg og háttv. samþm. minn (H. H.) erum flutningsm. að, og eru ástæðurnar mjög líkar og fyrir frv. á þgskj. 166, sem hjer er næsta mál á dagskránni, en flutningsmaður þess mun sjerstaklega taka fram ýmislegt, sem mælir með því frumvarpi, svo jeg skal ekki fara frekar út í það. Eins og sjest á nefndarálitinu á þgskj. 482, þá hefir nefndin klofnað í tvo hluta, sem hvor um sig eru á algjörlega gagnstæðri skoðun. Háttv. meiri hluti heldur því fram, að gagnslaust sje, að gjöra nokkrar sjerstakar breytingar á prestakallaskipuninni, nema gagngjör breyting sje gjörð á lögunum. Mjer er óskiljanlegt, að það geti alls ekki til mála komið, vilji menn annars viðurkenna, að lögunum sje þó í einstökum atriðum ábótavant. Við minni hlutinn í nefndinni höldum því fram, að þar sem órjettlætið í lögum þessum kemur harðast niður, og þar sem erfiðleikarnir eru mestir á framkvæmd laganna, þar beri brýn nauðsyn til fyrir Alþingi, að líta á þetta með allri sanngirni og kippa þessu í lag. Hinn hlutinn vill sem sagt ekkert gjöra, fyrr enn lögin sjeu endurskoðuð í heild sinni. Og hann gengur jafnvel svo langt, að hann segir, að þar sem prestar geti ekki fengið næga áheyrendur, þar sje engin nauðsyn á að fjölga þeim. Með öðrum orðum, hann virðist ganga út frá því sem sjálfsögðu, að skortur á kirkjurækni sje eingöngu að kenna prestunum; annað komi ekki þar til greina. En hjer er á margt annað að líta. Erfiðleikar á að sækja kirkju sína eru auðvitað því meiri, sem lengri veg er að fara, og hlýtur því að draga úr kirkjurækni manna, og sjeu prestaköllin afarvíðlend, en kirkjur margar, þá er það líka augljóst, að messur í hverri kirkjunni fyrir sig verða sárfáar. Á þetta tvent verða menn að líta með allri sanngirni. Og það þykist jeg alveg sannfærður um, að sjeu tveir prestar, sem njóta sams konar álits í sinni kennimannsstöðu, en annar hefði stórt prestakall með t. d. sjö kirkjum, en hinn lítið, með tveim eða þrem kirkjum þá myndi hver einstakur safnaðarmeðlimur sækja langt um oftar kirkju hjá þeim, sem hefði minna kall og færri kirkjur. Enda er nú komið á daginn, að einmitt þessir stóru söfnuðir eru farnir að biðja um skiftingu, sökum þess, að þeir finna, að þeir geta ekki notið þeirrar andlegrar uppfræðingar og góðu áhrifa hjá prestinum, sem skyldi, og þeir óska eftir. Þeim er einnig beinn órjettur gjör að því leyti, að þeir verða að borga jafnmikið til prests og kirkju, þótt þeir fái langt um færri messur og hafi jafnvel sáralítil not prestsins. Þessa afstöðu safnaðanna, bæði frá þeirri andlegu og borgaralegu hlið, hljóta menn að viðurkenna, þótt einhverjir einstaklingar sjeu til, sem virða presta og þeirra starfsemi að engu.

Þá var og ein setning í nefndaráliti meiri hlutans, sem jeg sjerstaklega hjó eftir, og á auðsjáanlega að kasta með því rýrð eða skugga á prestastjettina. Hún er þannig: »Það er sárt að sjá bestu jarðirnar í sveitunum algjörlega vanræktar«. Jeg held nú, að ekki sje hægt að tala um sjerstaka vanrækslu á jörðum af hendi prestanna. Það er auðvitað, að þeir eru misjafnlega fallnir til búskapar, öldungis eins og við bændurnir, en fjöldamarga presta þekki jeg, er sitja jarðir sínar aðdáanlega, og það svo, að fáir bændur gjöra betur. Það kann vel að vera eitthvað til í því, að borið hafi á vanrækslu á stöku stað í því, að prestar sætu sem best jarðir sínar, en alment sjeð hygg jeg, að ekki sje hægt að bera þeim það á brýn, sem betur fer. En vilji meiri hlutinn halda þeirri skoðun fram, þá lagar hann ábúð prestsetranna ekki með því, að gjöra prestum með öllu ókleift, að geta sint búskapnum eða meðferð á jörðinni. Því sjáanlegt er það, að þetta verður því erfiðara fyrir prestinn, sem prestakallið er víðlendara og umfangsmeira. Þá mintist háttvirtur meiri hluti á það, að rjettast mundi að aðskilja ríki og kirkju. Þetta er nú ekki nein ný kenning. Aðskilnaðurinn hefir verið lengi á döfinni. En þar um hefir ekkert þokast nær; þar er alt í sama farinu og verið hefir og ekkert útlit fyrir annað fyrst um sinn. Ef nú einstakir söfnuðir, sem finst þeir vera beittir misrjetti, eiga að bíða eftir því, að þeir fái rjett sinn, í fleiri áratugi, vegna þessarar viðbáru, þá verð jeg að segja, að afskiftaleysi löggjafarvaldsins um það, að allir njóti jafnrjettis í kirkjulegum málefnum, verður illa afsakanlegt. Menn mega ekki loka augunum fyrir því ástandi, sem nú er, þótt þeir voni og óski einhvers í framtíðinni. Þetta segi jeg ekki af því, að jeg sje að hafa á móti fríkirkju, heldur af því, að jeg býst ekki við, að hún komist svo fljótt á, að þeirri hreyfingu geti orðið beitt til þess, að eyða því sanngirnismáli, sem hjer er flutt.

Viðvíkjandi þessum prestaköllum, sem jeg fer fram á, að ekki sjeu sameinuð, þá skal jeg geta þess, að ef svo færi, að þessu aðskilnaðarmáli verði að engu sint, þá yrðu þarna 7 kirkjur, og full þingmannaleið frá insta bæ prestakallsins til þess ytsta, og auk þeirrar vegalengdar eru fjórir afdalir afskektir og illir yfirferðar innan prestakallsins. Það hlýtur því öllum að vera ljóst, hve mikið samband muni geta orðið á milli prestsins og safnaðanna þar, sem svo er ástatt. Og þetta verður söfnuðunum því meira áhyggjuefni, sem þeim er það ljósara, hve mikla þýðingu það hefir fyrir andlegt líf þeirra, að presturinn geti beitt sínum áhrifum sem best, og frá hans hlið verður það þá líka hans fyrsta og helsta ósk, að svo megi verða.

Viðvíkjandi frumv. á þgskj. 166, þá skal jeg að eins geta þess, að þar munu erfiðleikarnir og vegalengdin vera jafnvel enn þá meiri. (Sigurður Sigurðsson: Um það frumv. er ekki verið að tala nú). Jeg mintist á það frumv., vegna þess, að það stendur alveg samhliða frumv. á þgskj. 165, og sýnist mjer því, að bæði þessi frumv. hljóti að ræða um leið eða hvort í sambandi við annað. Jeg sje svo ekki, að það hafi neina þýðingu að orðlengja frekar um þetta mál. Jeg býst við, að háttv. framsm. meiri hlutans (J. J.) haldi fram sinni skoðun, eins og hún kemur fram í nefndaráliti meiri hlutans. Hvernig háttv. deild lítur á málið, er mjer ekki fyllilega ljóst, en jeg þykist nú hafa drepið á helstu atriðin, sem ber að taka verulegt tillit til.