24.08.1915
Neðri deild: 41. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1536 í B-deild Alþingistíðinda. (2273)

74. mál, skipun prestakalla

Frsm. minni hl. (Stefán Stefánsson):

Jeg er þakklátur háttv. 2. þm. Rang. (E. P.) fyrir góðar undirtektir hans undir álit okkar minni hlutans. En aftur fundust mjer röksemdir háttv. 1. þingm. Árn. (S. S.) alleinkennilegar. Hann sagði, að æskilegt væri, að prestar hefðu sem minstan verkahring. En hvað er það, sem þetta frumv. fer fram á, annað en að minka verkahring prestanna. Er það, að fækka sóknum þeim, er þeir eiga að þjóna, nokkuð annað en einmitt framkvæmd á þessari hugsun háttv. þingmanns. Og samt er hann á móti frumv. Þetta kemur ósköp vel heim við aðrar röksemdafærslur háttv. meiri hluta.

Þá sagði háttv. þingmaður (S. S.) mikið rjettilega, að kirkjurækni fólks hlyti að fara eftir hugarfari þess sjálfs. En hverjir eru það, sem mest áhrif eiga að hafa á hugarfar fólksins og leiðbeina huganum til þess, sem göfgast er og háleitast?

Vitanlega prestarnir. Það er þeirra aðalstarf, en af því leiðir aftur, að fólkinu verður þó að vera gjört það mögulegt, að njóta þessarar andlegu leiðsögu.

Þarna virðist háttv. þingm. (S. S.) aftur reka sig á í sinni röksemdafærslu.

Hvað best horfi fyrir andlegt líf í söfnuðunum, skal jeg ekki segja, en hvað þetta mál snertir, þá er það víst, að söfnuðirnir eru mjög óánægðir, og krefjast leiðrjettingar sinna mála. Jeg skal játa það, að ekki sýnist vera neitt sjerstakt á móti því, að fækka að einhverju leyti kirkjum í Eyjafirði, en eins og jeg hefi tekið fram, þá neita söfnuðirnir því algjörlega, enda mun það vera hið almenna, að söfnuðunum er mjög sárt um að eyðileggja kirkju sína. Menn kunna best við sig í sinni venjulegu kirkju, og una því ekki, að verða að sækja til kirkju sinnar á aðra staði, og þá með öðru fólki, meira og minna lítt þektu.