07.08.1915
Neðri deild: 27. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1544 í B-deild Alþingistíðinda. (2286)
79. mál, hvalveiðamenn
Guðmundur Eggerz:
Jeg tók ekki til máls við 1. umr. þessa frumv., vegna þess, að jeg hafði litið svo á, að það hefði verið samkomulag milli mín og háttv. flutnm. (Sk. Th.), að hann yrði því ekki mótfallinn, að málið gengi til nefndar. En þegar til kom var málinu vísað til 2. umr. nefndarlaust.
Jeg skal nú gjöra tilraun til þess, að sýna fram á, að það er nauðsynlegt, að málið gangi til nefndar og færa rök að því, að málið er ræð öllu ótímabært og frumv. má ekki verða að lögum. Eins og kunnugt er og jeg hefi tekið fram áður, þá hefir þetta hvalveiðamál mikla þýðingu fyrir sjómenn austanlands, og þeir hafa látið sjer mjög ant um það. Og hvað sem því líður, þá er háttv. deild fullkunnugt um það, að þetta er eitt af stórmálunum í Noregi. Hvað sem mínum skoðunum í þessa máli líður, þá er það víst, að sjómenn eiga það skilið, að þetta mál, sem þeir álíta svo þýðingarmikið, sje ekki afgreitt frá þinginu, án þess að það sje athugað í nefnd.
Jeg verð að ganga inn á málið frá byrjun. Eins og kunnugt er, þá var það samþykt á þinginu 1913, að hvalir skyldu friðaðir hjer við land á tímabilinu frá 1. okt. 1915 til 1. jan. 1925.
Ástæðan til þessa var meðal annars sú, að menn voru sammála um það, að tæki löggjafarvaldið ekki í tauman, þá mundi þessi dýr upprætast hjer við land, og það hefir ekki þótt sæmandi neinni siðaðri þjóð, að láta heilar dýrategundir deyja út hjá sjer. Afleiðingin af þessum friðunarlögum hlýtur að verða sú, að hvölunum fjölgar, og þá eru þess líkur, að Íslendingar geti sjálfir fengið arðinn af því, að veiða þessi dýr. Eins og kunnugt er, hafa Norðmenn grætt tugi miljóna á hvalveiðum hjer við land, en Íslendingar ekki nema nokkra tugi þúsunda, sem þeir hafa fengið með þeim lítilfjörlega útflutningtolli, sem var á lýsi og öðrum hvalafurðum. Og það er ekki svo vel, að útgjörðarmenn hafi látið Íslendinga vinna að veiðunum. Nei, þeir hafa notað til þess Norðmannarusl, því að það var ekki nema ruslaralýðurinn í Noregi, sem hafður var til þessarar vinnu. Þetta voru allir sammála um 1913. Aftur á móti voru skoðanir manna um það, hver áhrif þetta gæti haft á fiskigöngur nokkuð dreifðar. Jeg sýndi þá fram á það, að jafnvel dr. Hjort, sem hefir skrifað stóra bók um þetta mál og er hlyntur hvalveiðamönnum, þorði ekki að fullyrða, að hvalirnir gætu ekki haft áhrif á fiskigöngurnar. Og mjer er vel kunnugt um það, að þegar um djúpa firði er að ræða, eins og Austfirði, þar sem firðirnir eru 60–70 faðma djúpir, og síldartorfa liggur í djúpinu, þá snuðrar hvalurinn torfuna, ef hann kemur. Hún fer upp undir yfirborðið og menn geta hæglega veitt hana.
Jeg tek þetta alt fram, til þess að sýna það, að það er alveg óforsvaranlegt, að láta málið ekki fara til nefndar. Í raun og veru fer frumv. þetta óbeinlínis fram á það, að upphefja friðunarlögin, og það hefði verið miklu hreinlegra af háttv. flutnm. (Sk. Th.), að koma með slíkt frumv. en þetta. En hann hefir ætlað að smeygja þessu inn í þeirri von, að menn athuguðu það ekki og samþyktu frumvarpið. En honum verður ekki kápan úr því klæðinu. Jeg hefi athugað það, og jeg býst við, að jeg hafi mikið meira vit á þessu máli en háttv. flutnm. (Sk. Th.). Jeg trúi því ekki, að hann hafi fengið mikla sjerfræðslu með þessari áskorun frá Jökulfirðingunum, sem ekki segjast geta lifað, ef þeir fái ekki hvalkjöt. Hvalafriðunarmálið vakti afarmiklar deilur í Noregi; það var sannkölluð borgarastyrjöld. Að lyktum fór svo, að árið 1904 voru hvalir friðaðir þar í 10 ár, og 1914 var friðunartíminn framlengdur um önnur 10 ár. Þetta verður ekki skilið á annan veg en þann, að þessi 10 ára reynsla hafi sýnt, að lögin hafi verið svo viturleg, að sjálfsagt væri, að framlengja gildi þeirra. Og það, að Norðmenn taka lögin upp aftur 1914, ætti að benda okkur á, að vera dálítið varfærnari og upphefja það ekki 1915, sem við höfum samþykt 1913. Jeg skil það mjög vel, að hvalveiðamenn sjálfir berjist af öllum mætti gegn lögunum, og jeg er sannfærður um það, að það eru ekki bændurnir eða vinnukonurnar í Jökulfjörðunum, sem eiga upptökin að þessu frumv., heldur eru það hvalveiðamennirnir, sem hafa sent kjósendurna til háttv. flutnm. (Sk. Th.), og hann hefir orðið svo smeykur, að hann hefir ekki þorað annað en verða við beiðni þeirra.
Aðalmótbáran móti frumv. 1913, var sú, að hvalveiðamenn mundu gjöra mörg hundruð þúsund króna skaðabótakröfu á hendur landssjóði. Og ekkert var sparað, til þess að halda þessari grýlu á lofti. Það má ekki gleyma Bull hvalveiðamanni, sem sendi þinginu símskeyti, til þess að fæla það frá því, að samþykkja frumv. En það fór öðruvísi en til var ætlast. Þingið sýndi, að það var hvergi smeykt.
Á þinginu 1914 var í háttv. Ed. borið fram frumv. af manni, sem hafði verið með friðunarlögunum, þess efnis, að lögin skyldu ekki koma til framkvæmda gagnvart þeim hvalveiðamönnum, sem nú stunduðu hvalveiðar hjer við land. Það frumv. fór þó að mörgu skemra en þetta frumv. Samt lauk því svo, að frumv. fjell við lítinn orðstír. Vantaði þó ekki á, að vel væri »prókúrerað« fyrir því. Bull var hampað þar enn þá með skaðabótakröfuna, og enn þá kom símskeyti til Alþingis. Flutnm. frumv. taldist svo til, að landssjóður mundi verða að borga mörg hundruð þúsund krónur í skaðabætur. Bull einn mundi heimta 50 þús. kr. En hvalveiðamennirnir hafa ekki enn þá krafist þessara bóta, og gjöra það vitanlega aldrei. Síst er það líklegt, að fjelagið, sem Bull er fyrir, fari að taka upp á þessu. Hann er ekki annað en umboðsmaður dansks miljónamanns, sem lítið mundi muna um þessa upphæð. Og til þess að sýna enn betur fram á, hversu ástæðulaus þessi ótti er, þá skal jeg geta þess, að Norðmenn eru sem óðast að rífa niður stöðvar sínar á Austurlandi, eru búnir að því á Mjóafirði og hafa engu skaðabótamáli hreyft enn þá. Nú kemur þriðja árið frá því, að lögin voru samþykt, og enn kemur frumv., sem felur það í sjer, að upphefja lögin, þótt aðalástæðan, sem menn höfðu á móti þeim, skaðabótakrafan, sje fallin í burtu.
Hverjum lifandi manni dettur nú í hug, að frumv. þetta stafi af því, að c. 70 Jökulfirðingar vilja fá sjer hvalkjöt? Það getur verið, að háttv. flutnm. (Sk. Th.) í einfeldni sinni og sakleysi trúi þessu, en tæplega aðrir. Jeg er svo fullviss um það, að það eru hvalveiðamennirnir, sem hjer standa á bak við. Því hefir verið haldið fram hjer í deildinni, sem mótbáru á móti friðunarlögunum, að hvalir væru hættir að veiðast og lögin væru því óþörf. En hvaða gagn hafa Jökulfirðingar þá af því, að frumv. verði samþykt. Nú, og þótt þeir veiðist, þá fá þeir ekki kjöt að heldur. Jeg veit til þess á Austfjörðum, að þá notuðu hvalveiðamennirnir allan hvalinn sjálfir, og ef hægt var að nudda einhverju hvalkjöti út úr þeim, þá var það bæði við háu verði og kjötið skemt. En ef ástandið er svo í Jökulfjörðunum, að þessir 70 menn, sem undir ávarpið hafa skrifað, og segjum 60–70, sem ekki hafa skrifað undir, vegna þess, að þeir hafa verið í vöggu eða sjúkir, sjeu svo bjargarlausir, að þeim liggi við hordauða, þá vil jeg að vísu ekki leggja svo mikið upp úr því, að fara þeirra vegna að breyta þessum lögum, heldur leitast við að hjálpa þeim á annan hátt. Landstjórnin ætti þá að taka að sjer þessa kjósendur háttv. flutnm. (Sk. Th.), sem segja sjálfir, að þeim liggi við hordauða. Þeir segja sjálfir í ávarpi sínu, að ekki sjeu mörg ár síðan, að fólk hafi þar dáið úr hor. Þetta er mjög alvarlegt mál. Jeg veit, að þeir eiga við erfið kjör að búa, vegna þess, að vetrarríki mun vera þar mikið. Og auðvitað er sjálfsagt að hjálpa þeim, ef þörf er á, en ekki með úldnu hvalkjöti, heldur góðri innlendri eða útlendri matvöru. Ef háttv. flutnm. (Sk. Th.) vildi koma fram með slíkt frumv., þá mundi jeg ekki setja mig á móti því. Hitt nær engri átt, að fara að breyta svona mikilsverðum lögum vegna 100–200 manna. Þessir kjósendur háttv. þm. (Sk. Th.) eru jafnframt ókurteisir gagnvart þinginu. Þeir segja í ávarpi sínu, að þeir vænti þess, að þingið verði svo rjettlátt og samviskusamt, þrátt fyrir alt, sem sagt sje o. s. frv. Líklega er þessum orðum aðallega beint til háttv. flutnm. (Sk. Th.), því að hann þekkja þeir best.
Þá vil jeg taka fram enn þá eina ástæðu fyrir því, að nauðsynlegt sje, að vísa máli þessu til nefndar. Hún er sú, að verði þetta frumv. samþykt óbreytt, þá er þessu fjelagi þar með gefinn einkarjettur til hvalveiða kringum alt land. Flutningm. frumv. í Ed. 1914 var þó svo aðgætinn, að takmarka veiðina við ákveðna bátatölu, en hjer er ekkert gjört í þá átt, og heimildin ekki bundin við Hesteyri eina. Þrátt fyrir það er jeg viss um, að það hefir ekki vakað fyrir háttv. flutnm. (Sk. Th.), að veita fjelaginu rjett til að reka veiðina hvaðan sem væri af landinu, t. d. af Eskifirði eða Norðfirði. Það kæmi ekki heldur kjósendum hv. flutnm. (Sk. Th.) til góða.
Jeg verð að segja, að það er óverjandi gagnvart Norðmönnum, að veita einu fjelagi einkaleyfi, þar sem þingið 1913 útilokaði alla Norðmenn. Það er hætt við, að norsku þjóðinni þyki undarlegt, að einn þeirra skuli undanþeginn.
Jeg vona þá, að jeg hafi sýnt háttv. deild fram á það, að mörg atriði eru athugaverð í frumv., svo að full ástæða sje til að vísa því til sjávarútvegsnefndarinnar, og gjöri jeg það að tillögu minni.