25.08.1915
Neðri deild: 42. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1551 í B-deild Alþingistíðinda. (2290)

79. mál, hvalveiðamenn

Framsögum. meiri hl. (Matth. Ólafsson):

Eins og sjest á nefndarálitinu, hefir nefndin ekki getað komið sjer saman. Meiri hluti nefndarinnar vill takmarka undanþáguna við tvo báta og 3 ár. Hann lítur svo á, að eina ástæðan til þess, að friða hvali, sje sú, að ef þeir sjeu friðaðir um nokkurra ára skeið, þá muni þeim fjölga, og að þá muni Íslendingar vera orðnir færir um að reka hvalveiðar sjálfir, og gætu þá setið að þeim hag, sem af þeim leiddi, en við getum ekki sjeð, að hætta sje á, að hvölunum fækki mikið, þótt þessi undanþága verði leyfð.

Aftur má gjöra ráð fyrir, að þessum tveimur útkjálkahreppum, sem hjer eiga hlut að máli, verði mikill hagur í því, að halda hvalveiðamanninum nú, meðan harðast er í ári. Vitaskuld get jeg ekki neitað því með rökum, að hvalir reki inn síld á þrönga firði, en þá hlýtur það eins að koma fyrir, að hann reki síldina út.

Jeg sje, að háttv. minni hluti býst við því, að hvalveiðamennirnir á Hesteyri hafi grætt stórfje á útgjörðinni í ár, af því að þeir hefir veitt 40 hvali á 4 báta, og færir hann það til sem rök, að Grænlandshvalur leggi sig á 47,000 kr. Til þessa er því að svara, að Grænlandshvalur veiðist hjer örsjaldan. Allan þann tíma, sem Norðmenn ráku hvalveiðar hjer við land, munu að eins tveir Grænlandshvalir (sljettbakar) hafa veiðst hjer. Auk þess er Grænlandshvalur ekki verðmætari en aðrir hvalir að öðru en skíðunum, af því að þau eru lengri og beinni og verpa sig ekki eins og önnur skíði, en þau munu óseljanleg nú, eins og hver önnur munaðarvara, en olía fæst ekki af honum, frekar en öðrum hvölum. Grænlandshvalur er nú svo sjaldgæfur, að hann sjest varla.