16.08.1915
Neðri deild: 34. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1558 í B-deild Alþingistíðinda. (2295)

90. mál, forðagæsla

Eggert Pálsson:

Þetta er stutt frumv. og víst fremur meinlaust. Samt sem áður get jeg ekki ráðið til þess, að láta það fara lengra en það er komið nú þegar. Deildin hefir, eins og kunnugt er, haft forðagæslumálið til meðferðar áður á þessu þingi, og árangurinn varð sá, að þessi háttv. deild hefir samþykt þingsályktunartillögu, um að leita álits sveitastjórna um þetta mál alt í heild sinni. Jeg lít svo á, að úr því, sem komið er, sje óviðeigandi að hrófla að nokkra leyti við forðagæslulögunum, fyrr en sveitastjórnirnar hafa látið uppi þetta álit sitt. Því finst mjer rjett, að láta málið sofna nú. Ef það verður ofan á, að forðagæslulögin fái að standa, og verði þá eitthvað breytt, virðist mjer sjálfsagt, að láta þau einnig ná til bæjanna.

Sumum kynni nú að finnast það vera ókurteisi af okkur, að fella frumvarpið, sem kemur frá háttv. efri deild, og gjöra það án þess að vísa því til annarar umr. En þá vil jeg minna á, að eftirleikurinn er jafnan óvandari og að háttv. efri deild lætur sjer einatt ekki mjög fyrir brjósti brenna, að stúta fljótlega frumvörpum, sem komið hafa frá þessari deild, og þarf í þeim efnum ekki langt til að rekja, eins og háttv. þingdeildarmönnum öllum er kunnugt.