23.08.1915
Neðri deild: 40. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1572 í B-deild Alþingistíðinda. (2320)

128. mál, rjúpnafriðun

Framsm. minni hl. (Jóhann Eyjólfsson):

Nefndarálit minni hlutans tekur fram ástæður þær, er liggja til breytingartillögunnar á þingskj. 460. Okkur sýnist meiri hlutinn ekki hafa fært fram nægilegar ástæður til þess, að frumvarpið verði felt þess vegna. Minni hlutinn leggur áherslu á það, að ekki sje kipt í burtu því ákvæði, að rjúpan sje friðuð í jöfnu hlutfalli öll árin. Það er ilt fyrir þá fyrst og fremst, sem atvinnu hafa af rjúpnaveiðum, að mega ekki skjóta rjúpuna í eitt ár af sjö, og lítill vafi á því, að verslunin spillist, ef útflutningur hættir heilt ár í einu. Útlendingar vilja alveg eins fá að eta rjúpuna það árið eins og hin, og taki fyrir útflutning hjeðan, þá leita þeir bara til annara landa. Sú ástæða, að rjúpan sje minna friðuð með því fyrirkomulagi, sem við viljum hafa, er ekki rjett. En minni hlutinn hefir og komið fram með breytingartillögu, þar sem friðunin er færð frá 10. til 1. október, því við höfðum heyrt, að mörgum, sjerstaklega Norðlendingum, þætti ilt að mega ekki byrja að skjóta fyrr en þann 10. Meiri hluti nefndarinnar álítur, að rjúpan verði skotin með miklu meira kappi, ef friðunartíminn væri lengdur, og það svo, að hætta gæti af því stafað. Jeg skil nú satt að segja ekki þessa röksemdafærslu, því eftir henni væri sennilega heppilegast að ófriða rjúpuna alt árið, vegna þess, að þá myndi enginn leggja kapp á að drepa hana. En jeg hygg, að rjúpan myndi verða skotin af jafnmikilli ákefð allan árs hringinn, og munu allir, sem til þekkja, sanna mitt mál í þessu efni.

Jeg get ómögulega sjeð, að betra væri að smella þessu eina ári til friðunar inn í á hverjum sjö árum, enda hefi jeg og enga góða ástæðu heyrt fram borna, er sanni það. Jeg hygg líka, að slíkt ákvæði sje ekki til í neinum friðunarlögum, þau munu hafa friðunina í jöfnu hlutfalli öll árin.

Það var aðallega þetta, sem jeg vildi leggja áherslu á; annars skal jeg ekki fara fleiri orðum um þetta að sinni.