23.08.1915
Neðri deild: 40. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1573 í B-deild Alþingistíðinda. (2321)

128. mál, rjúpnafriðun

Magnús Kristjánsson:

Jeg skil ekki í öðru en að háttv. deild taki vel í þetta frumvarp. Jeg man ekki betur en að einmitt sama atriðið væri til umræðu í dýrtíðarmálinu sæla, og gekk þá hjer í gegnum deildina, enda var það ekki nema eðlilegt og sjálfsagt, eins og nú er ástatt.

Þótt nú háttv. Ed. feldi hitt frumvarpið, þá sje jeg ekki, að þessi háttv. deild þurfi endilega að beygja sig þannig, að hún geti ekki samþykt þetta frumvarp, sem gengur í sömu átt. Þegar þess er gætt, að talsvert af mönnum á nú þröngt í búi, með fram vegna ófriðarins, þá skil jeg ekki að menn sjeu á móti því, að gjöra þessar ráðstafanir, og það því fremur, sem þetta er í fullu samræmi við það, sem þessi hv. deild hefir alveg nýlega samþykt. Mjer sýnist þess vegna, að háttv. deild taki vel í þetta mál; því þó að menn kunni að segja, að ekki sje mikil björg í þessu, þá veit jeg þó, að ef þetta mál nær fram að ganga, þá getur það orðið að talsverðu gagni fyrir ýms hjeruð, þar sem jeg þekki til. En jafnframt hefði þurft að banna útflutning, ef vel ætti að vera. Hvað frumvarpið að öðru leyti snertir, þá tel jeg það ekki til bóta, að láta friðunartímann ná svo langt fram á haustið, sem þar er til tekið, en úr því er bætt með breytingartillögu minni hlutans á þgskj. 460.

Jeg sje ekki ástæðu til þess, að fjölyrða frekar um þetta; hygg að mönnum sje það svo ljóst, og undarlegt þætti mjer, ef háttv. deild tæki nú upp á því, að vera þessu mótfallin.