25.08.1915
Efri deild: 42. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 261 í B-deild Alþingistíðinda. (238)
60. mál, vélgæsla á gufuskipum
Karl Einarsson :
Þetta mál hefir verið endursent frá háttvirtri neðri deild. Í því hefir engu verið breytt, að eins færðar til nokkrar greinir. Jeg þarf ekki að orðlengja um það; nefndin hefir fallist á að samþykkja það, eins og það nú liggur fyrir, og vona jeg því að háttv. deild samþykki það óbreytt.