11.09.1915
Neðri deild: 57. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1691 í B-deild Alþingistíðinda. (2401)
140. mál, heimild til dýrtíðarráðstafana
Bjarni Jónsson:
Háttv. 2. þm. Rang. (E. P.) er framsögumaður minni hlutans í þessu máli, en ekki jeg, en það voru að eins nokkur orð, sem jeg vildi tala. Nefndarálit minni hlutans kemur nokkuð seint, vegna þess, að við tókum það ekki nógu snemma í höfuðið. Jeg skal geta þess, hver rök liggja til þess. Við höfðum ekki tíma til að athuga þetta langa nefndarálit, vegna þess, að svo mörgum merkilegum málum var að sinna núna dagana áður. Í nefndaráliti okkar var því ekki tækifæri til þess að rekja málssöguna. Jeg vík að eins örfáum orðum að því, að þetta frumvarp er ekki borið fram til þess að það verði samþ. Fyrir nokkrum dögum var sams konar frumv. felt, sem von var, því að það er bygt á röngum grundvelli, og fengu þingmenn ámæli fyrir. Nú halda þeir því, að sjálfsagt sje fyrir þá að sýna einhvern lit á að hjálpa. En miklu væri betri engin hjálp en svona löguð hjálp. Það eina, sem er gott við frumv. þetta, er það, að ekki skuli þessi hjálp talin sveitarstyrkur. Grundvöllurinn undir hverju dýrtíðarfrumvarpi á að vera sá, að þeir fátæku þiggja, en þeir ríku borga. En samkvæmt þessu frumv. á hver hreppur að sjá um sig sjálfur, og nú er það svo, að sumir hreppar verða harðar úti en aðrir, og þess vegna væri rjett, að hinir efnuðu hreppar hlypu undir bagga með þeim fátæku. En að segja svona út í loftið: »Passið ykkur sjálfir«, nær ekki nokkurri átt. Flutningsmenn þessa frumv. vilja auðvitað segja það, að það verði sjeð fyrir þeim í útflutningstollafrumv., en þm. Dal. veit vel, hvað farið hefir fram hjer á bak við tjöldin, bæði eitt og annað, og jeg get skýrt frá því, ef vill, síðar meir. Frá þessu sjónarmiði er því ekki ástæða til að ræða einstakar greinar frumv.