13.09.1915
Neðri deild: 59. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1697 í B-deild Alþingistíðinda. (2407)
140. mál, heimild til dýrtíðarráðstafana
Sveinn Björnsson:
Jeg verð að segja nokkur orð af því að jeg á eina brtt. við þetta frv. Hún er svo stutt, að allir geta áttað sig á henni þegar í stað. Hún fer í þá átt, að landssjóður leggi eitthvað af mörkum til þeirra, sem harðast verða úti í dýrtíðinni. Fyrir mjer horfir þetta mál þannig við, að verði þessi brtt. mín ekki samþykt, þá álít jeg, að frumv. komi að engu gagni. Jeg gjöri ráð fyrir því, að hægt sje, að hafa saman án heimildar alt það fje, sem með þarf, nema það sem landssjóður á að leggja til. Ef brtt. mín yrði samþykt, þá kæmi það fram, sem jeg óska, að þingið láti koma fram, að það vilji, að landssjóður sýni samúð með þeim, sem harðast verða úti, vegna dýrtíðarinnar. Þetta gjald, sem ætlast er til að landssjóður leggi fram, er svo lítið, að hann getur ekkert um það munað. Annars liggur málið svo ljóst fyrir, að óþarfi er að fara um það fleiri orðum.