13.09.1915
Neðri deild: 59. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1705 í B-deild Alþingistíðinda. (2413)

140. mál, heimild til dýrtíðarráðstafana

Ráðherra:

Háttv. þm. Dal. (B. J.) gjörði fyrirspurn til stjórnarinnar og Velferðarnefndarinnar um það, hvort tilætlunin væri ekki sú, að nota það fje, er landssjóður ætti, þegar frumv. yrði að lögum, til þess að afla sjer útlendra nauðsynja. Jeg vil taka það fram, að mitt svar er eingögu fyrir sjálfan mig; væntanlega svarar nefndin fyrir sig. Að vísu hefir Alþingi gefið heimild til þess að taka lán, til að kaupa erlendar vörur fyrir, en vitanlega er þó heppilegast að skulda sem minst, og gæti því verið ráðlegt, að nota þenna tekjuauka (verðh.tollinn) í þessu skyni. Sjerstaklega getur það hugsast, að landið tapi reikningslega á þessum vörukaupum. Vörurnar geta hækkað talsvert í verði á 3–6 mánuðum, og þá gæti hugsast, að þessi tekjuauki yrði notaður til þess að bæta þetta tap upp. Líka getur það hugsast, að vandræði yrði í sveitum, vegna misæris, og býst jeg þá við, að til þessa fjár mætti grípa.

Háttv. þingmaður talaði líka um halla á fjárlögunum. Jeg sje ekkert á móti því, að til þessa fjár yrði gripið, til þess að fylla einhvern veginn upp í hann. Annars vil jeg benda háttv. þingmanni á það, að tekjuhallinn verður talsvert meiri en hann lítur út í fjárlögunum. Þau fóru hjeðan seinast með 356 þús. kr. tekjuhalla. En við það verður að bæta 20 þús. kr. árlega til landhelgissjóðs, og 100 þús. kr. árlega til Landsbankans. Svo má og gjöra ráð fyrir óhjákvæmilegum umframgreiðslum. Þær urðu núna seinast, eins og fjáraukalögin 1914–1915 bera með sjer, 160–170 þús. kr. Og enn hefir Alþingi nú samþykt ýms lög, sem hafa útgjaldaauka í för með sjer. í raun og vera verður útgjaldaliðurinn því 700–800 þús. kr. hærri en tekjuliðurinn. Það getur verið, að tekjurnar verði talsvert hærri en áætlað er, en það getur líka farið á hina leiðina, og þá er betra að nota þenna tollauka, til þess að jafna hallann en að láta hann standa í skuld.