19.07.1915
Neðri deild: 10. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1762 í B-deild Alþingistíðinda. (2446)

13. mál, harðindatrygging búfjár

Guðmundur Hannesson:

Mjer þykir nefndar í þessu máli á því, að margt er athugavert við frumv. þetta, engu síður en frumv. það, sem nýlega var borið fram um að afnema forðagæslulögin. Jeg er samdóma þeim mönnum, sem hvorki telja það hyggilegt eða sæmandi fyrir þingið, að semja þýðingarmikil lög og fella þau síðan úr gildi, áður en telja má að nokkur veruleg reynsla sje fengin fyrir því hversu þau gefast. Að öðru leyti fæ jeg eigi betur sjeð en að flestir sömu gallarnir sjeu á þessu frumv., sem nú eru taldir forðagæslulögunum til foráttu. Skoðanir eru fleiri, skýrsluhald engu minna nje einfaldara og kostnaður meiri, að minsta kosti fyrir landssjóð. Forðagæslumenn hafa lítið vald eins og nú, viðurlögin fyrir vanrækslu hin sömu, sektir og kærur eftir á, sem að engu haldi koma, þótt illa hafi farið. Ef bera skal saman kostnaðinn við þetta frumv. og forðagæslulögin, verður að miða við landið alt, og þá fer hann yfir 80 þús. kr. á ári. Það verður að gjöra sjer grein fyrir því, hvaðan á að taka fje þetta, en í raun og veru hlýtur kostnaðurinn að verða miklu meiri, eða gagnið að lögunum tvísýnt, því að lítið dregur það í harðæri, þótt aukreitis heyforði á bæ sje einir 3 hestar og af kornmeti 200 pund. Þó gjört sje ráð fyrir því, að fjöldi heimila sje birgur, er þetta tæplega helmingurinn af því, sem þyrfti, ef að verulegu gagni skal koma.

Aðalbreytingin frá forðagæslulögunum er sú, að hjer er að ræða um heimildarlög. Frjálslegra er þetta að vísu, en aftur hæpið, að lögin komi þá að tilætluðum notum. Jeg sje að minsta kosti ekki, að tími sje kominn til að gjöra svo stórfelda breytingu á lögunum. Lægi nær að samþykkja líka breytingu á forðagæslulögunum og hjer var borin upp á síðasta þingi, og miðaði til þess að auka vald forðagæslu manna, svo að þeim væri fært að forða fje manna frá hordauða, en sektir og kærur fjellu niður. Það má vel vera, að þessi lög sjeu nauðsynleg, en satt að segja virðist mjer, sem þingmanni fyrir bændakjördæmi, að bændum sje að mörgu leyti skömm gjörð með ýmsum ákvæðunum. Það er alveg eins og við færum að setja sjómönnum lög um það, að þeir mættu ekki róa neglulausir. Bændur þekkja flest vel, er að þessu máli lýtur, en það, sem dregur þá, er hagnaðarvonin, vonin um, að alt gangi nú vel að þessu sinni, og reynist svo, þá er oft mikill gróði í aðra hönd. Það er gróðavonin, sem freistar manna. Sem dæmi þessa get jeg nefnt úr mínu kjördæmi síðastliðið ár. Sumarið var ilt fyrir bændur. Með ásetning fóru þeir bil beggja, fækkuðu fjenaði að mun, en þó eigi svo, að hlítt hefði í hörðum vetri. En fyrst vel gekk, þá græddist mönnunum eflaust talsvert fje. Það er þessi von, sem dregur menn, og margir djarftæku mennirnir efnuðust vel. En slíkur hugsunarháttur er eigi að síður ekki góður, og slíkur búskapur getur ekki kallast menningarbúskapur.