17.07.1915
Neðri deild: 9. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1771 í B-deild Alþingistíðinda. (2455)
15. mál, forðagæsla
Jóhann Eyjólfsson:
Mjer þykir það dálítið leiðinlegt, að þetta frumv. skuli vera komið fram. Jeg get ekki betur sjeð, en að það sje of fljótt, að vilja nú fara að eyðileggja þessi lög, áður en þau eru reynd til nokkurrar hlítar. Jeg efast ekki um að það sje rjett, að margir sjeu þessum lögum mótsnúnir. Því er svo farið um flest lög, sem einhvern kostnað eða fyrirhöfn hafa í för með sjer. En þótt margir sjeu nú óánægðir með þessi lög, þá er hætt við, að það myndi líka skapa óánægju, ef þeim verður nú í burtu kipt. Jeg er ekkert hissa á því, þó menn vilji breyta lögunum, en hitt er jeg hræddur um að verði aldrei vinsælt, að kippa þeim alveg burtu, án þess að setja nokkuð í staðinn. Það getur ekki orðið langt þangað til ný lög verða samin, sem fara í svipaða átt, og væri þá leiðinlegt að vera nýbúinn að fella þessi lög úr gildi; sanni nær, að lagfæra þau eitthvað, ef það eru á þeim auðsæir gallar. Við erum ekki búnir að lifa nógu lengi með lögunum til þess að vita, að þau sjeu óhafandi.
Þó að háttv. 2. þm. Rang. (E. P.) áliti, að áminningar forðagæslumannanna hafi ekki mikla þýðingu, þá held jeg, að þær hafi einmitt mikið að þýða. Jeg vissi það, að upp um Mýrar og Borgarfjörð var talsvert tillit tekið til slíkra leiðbeininga, og þar sem menn vísað, að um skýran mann var að ræða, þá var mikið tillit tekið til ráða hans og oft farið að orðum hans. Það er ekki heldur þýðingarlaust, að lesa upp á hreppaskilum á vorin, hvernig fjenaður bænda hafi gengið fram. Það er eins og nokkurs konar próf, og mönnum er ekki sama um vitnisburðinn. Hann vilja menn gjarnan hafa sem bestan. Það er enginn vafi á því, að margt er það í þessum lögum, sem heldur hvetur menn til að hafa búpening sinn í betra lagi. Jeg er því hissa á því, að nú skuli vera farið fram á að nema þau úr gildi, án þess að setja nokkuð í staðinn. Jeg vildi helst ráða til, að málið yrði ekki látið halda lengra, nema þá til að lagfæra lögin, ef þingið treysti sjer til að gjöra það eitthvað til gagns.