17.07.1915
Neðri deild: 9. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1777 í B-deild Alþingistíðinda. (2458)

15. mál, forðagæsla

Flutnm. (Eggert Pálsson):

Alt er þegar þrent er. Nú hafa þrír háttv. þingmenn talað í röð og allir haldið hlífiskildi fyrir forðagæslulögunum. Það má lengi deila um það, að hverju gagni þessi löggjöf hefir komið. Jeg held því nú fram, að það sje lítið, og þykist þar hafa stuðning mikils meiri hluta þjóðarinnar mín megin.

Háttv. þm. S.-Þing. (P. J.) mintist á horfellislögin, sem þjóðin hefði nú lifað undir í nærfelt 40 ár, og hjelt því fram, að þau hafi komið oss að svo og svo miklu gagni. Jeg er nú ekki þeirrar skoðunar. Mjer virðist ekki þurfa lengra að fara en til vorsins í fyrra, til þess að sjá vottinn um það, að gagnið, sem horfellislöggjöfin hefir unnið oss, muni ekki vera sjerlega mikið. Jeg hygg, að fá fellisár hafi verri orðið, að minsta kosti hjer á Suðurlandi, en vorið 1914. Þetta er nú reynslan eftir öll þessi ár, og jeg bygg, að sama verði ofan á framvegis, þótt saminn sje og látinn gilda annar lagabálkur í þessum efnum. Sannleikurinn er sá, að þetta lagast ekki með neinu, nema aukinni menningu þjóðarinnar.

Háttv. þm. Mýr. (J. E.) óskaði þess helst, að þetta mál yrði ekki einu sinni sett í nefnd. Jeg hygg, að hann hafi sagt þetta í athugaleysi, því úr því hjer eru framkomnar raddir um fleiri breytingar, þá virðist eins vel mega athuga þá grundvallarbreytingu, sem hjer er farið fram á. Og jeg veit ekki, nema það væri á móti þingsköpunum, að fella það fyrst, að nema lögin úr gildi, en samþykkja svo ef til vill eftir á eitthvað annað, sem óhjákvæmilegt gjörði, að þessi lög yrðu upphafin. Það liggur þess vegna beint við, að vísa þessu frv. til nefndar, hvort sem þingið felst nú á, að gjöra meiri eða minni breytingar á lögunum, eða nema þau alveg úr gildi.

Sami háttv. þm. (J. E.) gaf það í skyn, að það væri kostnaðargrýlan, sem orsakaði það, að jeg og aðrir vildu nema forðagæslulögin úr gildi. Það er alveg rjett, það er kostnaðurinn, sem er aðalatriðið. Það mundi enginn hafa á móti því, þótt menn væru að róla manna á milli og gefa þeim ráð og bendingar, ef það kostaði ekkert. En við viljum ekki fleygja peningum út til þess, sem við erum sannfærðir um, að ekki gjöri neitt gagn.

Háttv. þm. S.-Þing. (P. J.) hjelt því fram, að það sýndi gagnsemi þessara laga, að rokið var til að gjöra ásetningssamþykt í hans sveit, og hefðu menn þar stuðst við lögin. En þetta sannar einmitt, að í þessum efnum er ekki nauðsyn á öðru frekara en að eins heimildarlögum, og það hafði jeg áður sagt, að þótt jeg hafi ekki mikla trú á gagnsemi slíkra laga, fremur en þeirra, sem nú eru í gildi, þá mundi jeg þó fallast á þau til samkomulags.

Háttv. þm. Mýr. (J. E.) ljet mikið af því, að tillit væri tekið til þess, sem forðagæslumennirnir segðu. En þá er mjer spurn: Hvers vegna myndi vera tekið meira tillit til þeirra, þótt þeir sjeu skipaðir að lögum? Jeg hefi ekki neina trú á því, að menn láti betur að ráðleggingum þeirra, þótt þeir vinni fyrir peninga, en ella.

Háttv. 1. þm. N.-Múl. (B. H.) spurði hvort mjer þætti ekki viðeigandi, að málið gengi til landbúnaðarnefndar. Jeg get nú kannast við það, að eftir eðli þess mætti það vel eiga þar heima. En jeg skal játa það hreinskilnislega, að það, sem vakti fyrir mjer, þegar jeg óskaði þess, að skipuð yrði sjerstök nefnd, til að athuga þetta frumv., var það, að ef þetta mál gengi til landbúnaðarnefndar, þá yrði enginn af flutningsmönnum þess í nefndinni. En það hefir hingað til þótt óviðkunnanlegt, að máli sje svo komið í nefnd, að enginn sje til að bera þar hönd fyrir höfuð þess. Mjer er þetta að vísu ekkert kappsmál, hvort landbúnaðarnefnd eða önnur sjerstök nefnd hafi mál þetta með höndum, en óska þess þó, að tillaga mín verði borin upp.