17.07.1915
Neðri deild: 9. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1781 í B-deild Alþingistíðinda. (2461)

15. mál, forðagæsla

Guðmundur Eggerz:

Mjer er það reyndar móti skapi, að tala hjer við 1. umr., en jeg kann ekki við það, að láta háttv. flutningsmenn standa eina uppi. Jeg bjóst síst við því, að háttv. þm. S.-Þing. (P. J.) færi að tala á móti þessu frumv., því að þegar hann kom heim af þingi 1913, þá vissi jeg ekki betur en að hann fengi bágt fyrir princip sín í þessu máli þá. Jeg vildi benda honum á þetta, til þess að hann gæti þess, að fá ekki enn þá bágara nú fyrir principin.

Þar sem háttv. þm. S.-Þing. (P. J.) talaði um ásetningsfjelagið þar nyrðra, þá skilst mjer að þetta fjelag mundi eins hafa komist á fót, þó að gömlu lögin frá 1900 hefðu verið í gildi. Jeg gæti vel felt mig við, að þau lög væru í gildi, enda tel jeg vafasamt að þau verði það ekki, þó að þetta frumv. verði samþykt.

Jeg hygg, að allir geti verið sammála um það, að forðagæslulögin veiti ekki meiri tryggingu fyrir því, að varlegar verði sett á, en horfellislögin frá 1900. Forðagæslumennirnir, sem skipaðir hafa verið í Suður-Múlasýslu, kvarta mjög undan því, hve umsvifamikið sje að framkvæma lögin. Eins og kunnugt er, sendir stjórnarráðið út eyðublöð, sem fylla á út. En það er svo fyrirhafnarmikið og vandasamt að útfylla alla þá dálka, að ef vel ætti að vera, þyrfti að senda hálærðan skrifstofustjóra úr stjórnarráðinu til þess að leysa það verk af hendi. Þá hafa þessi lög miklu meiri kostnað í för með sjer en gömlu lögin. Og bændunum verður ekki láð það, þó að þeim þyki hart að borga það miklu dýrara, sem á engan hátt er betra. Enn má telja það, að forðagæslumönnunum er mjög óljúft að hafa þá stöðu á hendi. Að líkindum mest fyrir það, að þeir telja sig, samkvæmt lögunum, bera ábyrgð á því, ef til fellis kæmi. Og það þykir þeim þung byrði, sem vonlegt er. Þeir segjast raunar geta gjört ráðstafanir til þess, að svo verði sett á, að fellir sje útilokaður. En hins vegar segjast þeir engin ráð sjá til þess, að koma því til leiðar að þeim ráðstöfunum verði fylgt.

Eitt hygg jeg að sje höfuðatriðið í þessu máli, og það er sá nýi og breytti hugsunarháttur almennings, að það borgi sig betur að fara vel með skepnurnar, heldur en að fara illa með þær, og enn fremur mannúðarstefnan, sem einnig á þessu sviði ryður sjer meir og meir til rúms. Í þessa átt hefir mikil breyting orðið á síðari árum, og það hygg jeg að komi miklu betur í veg fyrir horfelli en nokkur lagaákvæði.

Að síðustu skal jeg geta þess, að jeg tel það rjettara, sem háttv. flutningsm. (E. P.) hefir stungið upp á, að sjerstök nefnd verði skipuð í þetta mál, en því ekki vísað til landbúnaðarnefndarinnar. Jeg býst við, að annað frumv., ekki ósvipað þessu, verði bráðlega borið fram hjer í deildinni. Það er frumv. um að afnema Bjargráðasjóðslögin. Væri vel til fallið, að sama nefndin hefði bæði þessi frumv. til meðferðar.